Umsóknarfrestur vegna forúthlutunar SVFR Karl Lúðvíksson skrifar 13. september 2011 09:52
Umsóknarfrestur vegna veiðileyfa í forúthlutun næsta sumar rennur út þann 20. september næstkomandi. Félagsmenn eru hvattir til þess að kynna sér málið. Í fyrstu atrennu sölunnar fyrir næsta veiðitímabil eru í boði dagar á frábærum ársvæðum, s.s. aðalsvæði Hítarár á Mýrum, Norðurá í Borgarfirði, Langá á Mýrum, Laxá í Dölum, Nesveiðar í Aðaldal, veiðisvæði Strauma og Leirvogsá. Að auki eru í boði urriðasvæðin norður í Laxá, kennd við Laxárdal og Mývatnssveit. Í forúthlutun er einungis hægt að sækja um þau ársvæði og tímabil sem eru tilgreind í forúthlutunarsöluskrá. Önnur tímabil og ársvæði sem SVFR er með á sínum snærum fara í almenna úthlutun til félagsmanna SVFR í byrjun árs líkt og tíðkast hefur. Þegar sótt er um í forúthlutun gilda þær reglur að þeir sem voru við veiðar sumarið 2011 hafa forgang að sínum veiðidögum 2012. Hins vegar ber að hafa í huga að mikill meirihluti þeirra sem sækja um fá úrlausn sinna mála því framboðið er mikið. Umsóknir skulu senda á netfangið halli@svfr.is Mikilvægt er að taka skýrt fram hvaða svæði er verið að sækja um, hvaða daga og hversu margar stangir. Vinsamlegast takið fram nafn og kennitölu þess sem sækir um. Birt með góðfúslegu leyfi SVFR
Stangveiði Mest lesið Lélegasta byrjun á veiðisumri í manna minnum Veiði Ágætis opnun í Hítará og Grímsá Veiði Áhugaverðar tölur í laxateljurum Veiði Svona stækkar þú fiskinn á mynd Veiði Laxinn kominn upp á efri svæðin í Kjós Veiði Eldislaxar veiðast í mörgum ám Veiði Þjófstart á þremur veiðistöðum Veiði Lúsugur lax 82 km frá sjó Veiði