Jólin

Ást og englar allt um kring

gun@frettabladid.is skrifar
Hulda og Hrafn eru samhent hjón sem búa til marga fagra hluti. Fréttablaðið/Stefán
Hulda og Hrafn eru samhent hjón sem búa til marga fagra hluti. Fréttablaðið/Stefán
Jólaóróar úr plexigleri og aðrir úr masoníti ásamt kortum úr krossviði er meðal þess sem hjónin Hulda Sveinsdóttir og Hrafn Jónsson búa til heima hjá sér í gömlu fjósi suður í Njarðvíkum. Hönnunarfyrirtækið þeirra heitir Raven Desing.

Nýjasti jólaóróinn úr smiðju Raven Design heitir því viðfelldna nafni Ást og englar og undirtitillinn er „allt um kring". Í fyrra var það Vonarstjarnan sem skein á jólatrjám og víðar þar sem henni var stillt upp. Ekki veitti af. Þau hófu gerð jólaóróa bæði úr plexigleri og masoníti árið 2005 og nú fást þeir bæði með framleiðsluártölum og án.

„Þetta byrjaði allt með tækifæriskortum sem ég fór að búa til árið 1999. Svo fórum við út í að gera jólaóróa og þá fæddist jólatréð og næsta ár kom snjókarlinn," lýsir Hulda og Hrafn tekur við. „Einn vinur okkar átti laserskurðtæki og hann skar út lítil hjörtu á kortin fyrir Huldu. Fljótlega sáum við að við hefðum sjálf þörf fyrir að eignast slíkt tæki og þá fór í gang sú þróun sem er orðin að ýmiss konar framleiðslu, svo sem jólaskrauti, minjagripum og leðurskarti."

Allt verður þetta fínerí til í gömlu fjósi sem þau hjón hafa breytt í heimili sitt og vinnustofu suður í Njarðvíkum. Þau selja handverk sitt víða, meðal annars í Loka, á jólamörkuðum við Elliðavatn og hjá Handverki og hönnun í Loka og á eigin heimasíðu, ravendesign.is.

Óróar úr masoníti. Sá fyrsti, jólatréð, kom á markað 2004.

Laufabrauðsóróarnir urðu til eftir að Hulda skar út frumkökurnar í Kristjánsbakaríi.

Hamraðir óróar veita skrautlegt endurkast af jólaljósum.

Vonarstjarnan er afgreidd í svartri öskju með áletrun.

Vonarstjarnan er líka til rauð.

Gamaldags kort úr tré sem hægt er að skrifa á með kúlupenna og henda í póst.

Ást og englar, nýi óróinn á örugglega eftir að gleðja marga.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×