Við tölvuskjá um morgun situr svefndrukkin manneskja með bauga undir augum, axlirnar stífar, andlitið fölt. Morgunþreytan liggur eins og mara yfir skrifstofunni, syfjaður starfsmaður teygir sig skjálfhentur í kaffibolla. Enn er dimmt úti, ætlar aldrei að birta?
Á sama tíma, í sömu götu, er leikskólabörnum skutlað út í snjóinn. Dúðuð upp fyrir haus fljúga börnin eitt af öðru út um dyrnar – minnstu krakkarnir lappastuttir, flísklæddir dvergar sem velta hnöttóttir áfram. Út með ykkur kæru börn, það er svo hollt að viðra sig! Í nálægum grunnskóla hópast glaðleg börn með rauðar kinnar inn úr snjónum.
Fólkið á skrifstofunni vinnur innivinnu eins og flestir fullorðinna á Íslandi. Fer ekki út allan liðlangan daginn og fær sér einungis meira kaffi þegar þokumóðan þéttist. Börnin eru á hinn bóginn skikkuð út í ferska loftið nokkrum sinnum yfir sinn vinnudag. Enda alkunna að annars slokknar hreinlega á þeim. Svo eru foreldrarnir hissa á því að þeir sjálfir séu búnir á því í lok dags, morknir af inniverunni? Þetta er rugl. Börnin hafa auk þess þegar súrefnisforskot á þá sem eldri eru – þau eru mun líklegri til að ganga og hjóla í skólann en foreldrarnir í sína vinnu.
Í þau fáu skipti sem ég sjálf hef bíl til umráða verð ég vör við merkjanlegan mun á eigin virkni og vellíðan. Þá ek ég í vinnuna „því ég er með bílinn" og sest svo grútsyfjuð niður við tölvuna – ekki enn vöknuð því ég er ekki búin að fá ferska loftið sem ég fæ á hjólinu. Lufsast enn slappari heim í lok dags. Það besta við að hjóla er ekki endilega að spara tugþúsundir í hverjum mánuði heldur að fá blóðið af stað og koma frísk aftur heim úr vinnu.
Það tók mig vandræðalega mörg ár að átta mig á beinu samhengi eigin vellíðunar, framleiðslugetu og þess að byrja og enda vinnudaginn á útiveru. Enn lengri tíma tók að átta mig á mikilvægi þess að skjótast út í hádeginu þegar skammdegið er sem mest og líta aðeins framan í daginn. Frænka mín fer iðulega í birtugöngutúra eftir hádegismat, annars er sólin löngu horfin þegar hún snýr aftur heim úr vinnu. Það er engum hollt að sjá aldrei bjartan dag.
Önugt fólk í ábyrgðarstöðum á vitanlega að skikka út í ferska loftið eins og litlu krakkana, freista þess að viðra úr því fúllyndin – og auka afköstin. Við gætum byrjað á frímínútum og skipulögðum birtugöngutúrum á Alþingi.
