Bakþankar

Reiði er réttmæt pólitísk afstaða

Kolbeinn Óttarsson Proppé skrifar
Menn keppast nú við að skilgreina hvað er á seyði í Bretlandi og gengur misvel. Helst er það skortur á pólitískum stefnumiðum sem stendur í fólki og verður til þess að ekki eru allir tilbúnir til að skrifa upp á að það sem á sér stað í borgum Bretlands núna sé annað en skrílslæti. Í slíkum hugleiðingum gleymist hins vegar að skrílslæti geta verið yfirlýsing, reiði getur verið réttmæt pólitísk afstaða.

Franska byltingin er gjarnan mærð í ræðu og riti. Lýðræðissinnar sjá í henni vakningu pólitísks almannavilja, lýðurinn reis gegn fulltrúa guðs hér á jörðu, konunginum, og endaði með því að hálshöggva kauða.

Án þess að ætlunin sé að draga samasemmerki milli atburða í Bretlandi nú og Frakklandi 1789, er vert að benda á að margt er sammerkt með þeim. Ekki fór mikið fyrir útpældum pólitískum stefnumálum í upphafi Frönsku byltingarinnar, reiður og svangur almúginn fór út á götur til að fá innibyrgðu vonleysi útrás. Og er það ekki nákvæmlega það sem er að gerast í Bretlandi?

þó blackberry símar og tíðar Twitter-færslur bendi ekki til að þátttakendur í bresku aðgerðunum séu við hungurmörk, verður ekki framhjá því litið að ástandið í bresku samfélagi hefur hríðversnað ár frá ári. Misskiptingin eykst og vonleysið í fjölmörgum borgarhlutum er orðið norm. „Oh Maggie what have we done?“ söng Roger Waters á The Final Cut og margir taka undir með honum nú. Ofurfrjálshyggja Thatcher skildi fjölda fólks eftir í algjöru vonleysi. Síðan eru liðin 30 ár.

haldi áfram sem horfir nær bilið á milli ríkra og fátækra í landinu hærri hæðum en það hefur gert síðan á dögum Viktoríu drottningar. Á dögum Dickens og Olivers Twist sem sagt. Tíundi ríkasti hluti Lundúnabúa á núna 273svar sinnum meira en tíundi fátækasti hlutinn. Og ekki virðist lögreglan beita valdi sínu af skynsemi. Síðan 1998 hafa 333 dáið í haldi lögreglu, án þess að einn einasti lögreglumaður hafi þurft að svara fyrir.

það er því kannski ekki nema von að dauði Marks Duggan í aðgerðum lögreglu hafi kveikt reiðineista. Neista sem varð að báli í öllum helstu borgum landsins. Og það er kannski ekkert skrítið að útfærða pólitíska stefnumörkun skorti. Þegar vonleysið hrjáir mann er reiðin alveg nógu skýrt stefnumarkmið. Alveg nógu pólitísk afstaða.






×