Skoðun

Ekki fleiri verkföll í sumar, takk

Þórir Garðarsson skrifar
Ég hef áður stungið niður penna af þessu tilefni og finn mig enn á ný knúinn til þess að benda á hversu fráleitt það er fyrir okkur sem erum að reyna að byggja upp ferðaþjónustuna á Íslandi að leggja framtíð hennar aftur og aftur að veði með vinnudeilum eða verkföllum á viðkvæmasta tíma.

Við störfum í ungri grein og áfangastaðurinn Ísland á í svo harðri samkeppni um hylli ferðamanna á alþjóðamarkaði að það er augljóslega andstætt hagsmunum okkar allra að setja ferðalög tuga eða hundraða þúsunda gesta okkar í uppnám þegar síst skyldi. Söluaðilar erlendis hafa miklar áhyggjur af verkfallsaðgerðum – því enginn vill verða fastur af þeim sökum fjarri heimaslóð – og beina ferðamönnum sínum annað.

Starfsfólk í ferðaþjónustugreinum, og þar á meðal í fluginu, á að sjálfsögðu að standa vörð um réttindi sín og öll viljum við fá hærri laun. Í samfélagi okkar hafa verið settar leikreglur um kjarabaráttunna og verkfallsrétturinn er þar ákveðinn grundvöllur.

Sá réttur hefur hins vegar snúist upp í algjöra andstæðu sína þegar hann er nýttur af fremur þröngum hópi fólks með góð laun, eins og flugvirkjum, til þess að knýja fram kauphækkanir umfram þá sem verr standa. Og vegna lykilstöðu þeirra í ferðaþjónustunni geta þeir með verkfallsaðgerðum valdið stórum hópi almennra launþega skaða vegna tapaðra viðskipta ferðamanna. Verkfall fárra dregur þannig úr tekjumöguleikum margra. Það bitnar helst á þeim sem enga aðkomu hafa að málinu.

Ég veit að nú eiga flugmenn og flugfreyjur einnig eftir að semja um sínar launahækkanir og mig hryllir við tilhugsuninni um fleiri verkföll og verkfallshótanir í sumar, umræður í fjölmiðlum hér heima og erlendis um niðurfellingu flugs, seinkanir, strandaglópa og tjónakröfur. Það bara má ekki verða. Ferðasumarið í fyrra rétt bjargaðist fyrir horn, en varð vegna eldgossins ekki eins og vonir stóðu til. Við megum ekki við áföllum í sumar.

Ég trúi því ekki á félaga okkar í þessum atvinnuvegi að þeir sjái þessa viðkvæmu stöðu sem tækifæri til þess að ná fram ýtrustu kröfum sínum með því að hóta aftur og aftur stöðvun flugsins.

Ég skora á flugstéttirnar að sýna sanngirni og vera samstiga okkur hinum í greininni í því að láta þetta ferðasumar ganga eins og best verður á kosið og skapa þannig öllum í greininni góða afkomumöguleika.




Skoðun

Skoðun

Um dánaraðstoð

Steinunn Þórðardóttir,Oddur Steinarsson,Thelma Kristinsdóttir,Katrín Ragna Kemp,Magdalena Ásgeirsdóttir,Margrét Ólafía Tómasdóttir,Ragnar Freyr Ingvarsson,Teitur Ari Theodórsson,Theódór Skúli Sigurðsson skrifar

Skoðun

Hún

Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Sjá meira


×