Dagurinn minn 13. október 2011 06:00 Ég fer í kirkjuna mína í dag og verð vitni að því þegar yndislegt barn er borið fram til blessunar. Mér dettur í hug kort sem ég fékk fyrir nokkru frá elskulegum foreldrum, sem á stóð: „Children are always the only future the human race has. Teach them well.“ Sannarlega er engin framtíð án barna og skiptir máli hvað fyrir þeim er haft. Eftir smá stund í veislunni, þýt ég heim til að skipta um föt, því ég er að fara í brúðkaup. Mér verður hlýtt um hjartarætur þegar ég hugsa til brúðhjónanna, svo falleg og ljúf, og gleðinni sem sat í hásæti langt fram á nótt og yndislegir borðfélagar. Í þeim hópi er ung kona er hafði fæðst á Fæðingarheimili Reykjavíkur og verið hjá mér á námskeiði þegar hún átti von á sínu fyrsta barni. Hún segir mér sögu af litla stráknum sínum – tengd tónlist – sem fer inn í hjartarætur mínar og er hvatinn að þessum skrifum mínum í dag. Fræðimenn telja að fyrstu tvö árin í lífi barns skipti sköpum – aðrir ganga svo langt að telja að hvernig við umgöngumst barnið í móðurlífi skipti og máli – að barnið skilji meira en við gerum okkur grein fyrir. Hljómsveitarstjóri Fílharmóníunnar í Ontario segir frá því að á yngri árum hafi honum oft fundist hann þekkja tónverkin sem hann var að æfa þótt hann hefði aldrei séð nóturnar. Hann færði þetta í tal við móður sína og þá leystist gátan, hún hafði verið að æfa þessi tónverk þegar hún gekk með hann. Blaðamenn við Winnipeg Free Press upplýstu fyrir nokkru að vísindamenn hefðu komist að þeirri niðurstöðu að börn sem lesið var fyrir í móðurlífi sýndu viðbrögð þegar sami texti var lesinn fyrir þau eftir fæðinguna og þannig mætti áfram telja. Öll börn, hvar sem þau fæðast á jarðarkúlunni, ættu að eignast þá lífsfegurð sem í því felst að þeim sé sinnt ekki einungis eftir fæðingu heldur og í móðurlífi – að þeim sé sagt meðan þau eru þar, hvað þau séu elskuð! Talað, sungið, spilað og lesið fyrir þau og þeim sagt frá djúpvitrasta barni allra tíma, barninu sem fæddist í Betlehem og varðveitti hið innra með sér frið og fegurð sem hann nú og ávallt vill deila með okkur. Þetta barn – varð mesti mannvinur allra tíma. Ekkert sem hann sagði eða gerði skemmdi lífið. Hvert orð sem féll af vörum hans og hvert verk sem hann vann var lækning og lyftistöng til fegurðar og betra mannlífs. „Leyfið börnunum að koma til mín og bannið þeim það eigi, því að slíkra er Guðs ríki.“ Á sama tíma og þessar hugleiðingar mínar fara á blað, er hópur fólks á litla Íslandi að krefjast þess, að nafn Jesúbarnsins sé ekki nefnt á nafn í skólum landsins – hvergi – eigi að þurrkast út. Ég er ekki að tala um kristniboð, en tel að þjóð, sem kallar sig kristna þrátt fyrir galla sína alla – beri skylda til að segja frá og kynna fegurðina sem felst í sögunni um Jesúbarnið og lífsviskuna sem felst í sögunum sem Kristur sagði sem fullorðinn maður og kynna þannig þá lífskúnst og lífsdýpt sem í orðum hans felast og þá fegurð sem af þeim hefur leitt til betra og bættara mannlífs. Það þarf ekki annað en horfa á einfaldan fréttatíma til að sjá hversu mjög okkur hefur rekið frá þeirri heillandi lífssýn, sem felst í djúpstæðum en þó svo einföldum kærleiksboðskap mannsins frá Nazaret, að þú og ég virðum og þyki vænt hvoru um annað, þar í liggja svörin til betra mannlífs. Vöntun á þeirri lífskúnst hefur komið til vegar vandamálum af stærðargráðu sem við ráðum hreint ekkert við. Jesús Kristur var ekki aðeins „besti vinur barnanna“ eins og stendur í sálminum. Hann var vinur allra. Hann var vinur og verndari kvenna, talaði við þær sem jafningja, leiðbeindi þeim og hughreysti, varði þær gegn ásakendum og svaraði fyrir þær: „Sá yðar sem syndlaus er kasti fyrstur steininum.“ Hann var laus við dulúð, kom beint að efninu í orði og verki, sem allir gátu skilið, var vinur lítilmagnans en einnig þeirra ríku sem óskuðu eftir nærveru hans. Jarðnesk gröf hans var gjöf frá einum slíkum. Boðskapur Krists var ekki flókinn, hann var list í lífsleikni eins og hún best getur orðið. Þess vegna má ekki taka frá yndislegum börnum okkar að kynnast þessum listræna mannkærleiksboðskap. Við getum ekki tekið afstöðu til þess sem við höfum aldrei kynnst! Guð blessi börn og foreldra þessa lands og hjálpi okkur að tileinka okkur það fegursta sem lífið hefur upp á að bjóða. Lifið heil Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðanir Mest lesið Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Látum hina borga Ingólfur Sverrisson Skoðun Halldór 13.06.2026 Halldór Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason Skoðun Útlendingarnir sem við Íslendingar erum sjálf Karen María Jónsdóttir Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson Skoðun Getum við lært af Bjarti í Sumarhúsum? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Látum hina borga Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar Skoðun Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Seiðkarlar fyrri alda Steingrímur Gunnarsson skrifar Skoðun Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um gangbrautirnar? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Misskilningur: RÚV, Silfrið og meint hlutdrægni Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Árnar eru ekki hreinsistöð fyrir sjókvíaeldi Brynjar Arnason skrifar Sjá meira
Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar