Vettel fremstur á ráslínu í ellefta skipti í ár 24. september 2011 15:34 Mark Webber, Sebastian Vettel og Jenson Button fagna árangrinum í tímatökunni í dag. AP MYND: TORU TAKAHASHI
Sebastian Vettel á Red Bull náði besta tíma í tímatökunni á Formúlu 1 brautinni í Singapúr í dag. Hann ók á tímanum 1:44.381 og Mark Webber á Red Bull náði næst besta tíma og var 0.351 úr sekúndu á eftir Vettel. Jenson Button á McLaren náði þriðja besta tíma og var 0.428 sekúndum á eftir Vettel. Vettel verður fremstur á rásllínu í ellefta skipti á árinu í kappakstrinum á morgun. Lewis Hamilton á McLaren verður fjórði á ráslínunni í kappakstrinum á morgun. Ekki náðist að setja bensín nógu hratt á bíl hans í tæka tíð á lokasprettinum í tímatökunni. Hamilton sat því í bílskúrnum síðustu mínúturnar og féll þannig úr öðru sæti í það fjórða, þar sem Webber og Button náði betri tíma í lokin. Fernando Alonso sem er í öðru sæti í stigamótinu á eftir Vettel náði fimmta besta tíma í tímatökunni og liðsfélagi hans hjá Ferrari, Felipe Massa var sjötti fljótastur. Þrír ökumenn sem komust í lokaumferðina óku ekkert í lokaumferðinni, trúlega til að spara dekkin fyrir sjálfan kappaksturinn á morgun, sem verður í beinni í útsendingu á Stöð 2 Sport kl. 11.30. Útsendingin verður í opinni dagskrá. Tímarnir í dag af autosport.com 1. Sebastian Vettel Red Bull-Renault 1m44.381s 2. Mark Webber Red Bull-Renault 1m44.732s + 0.351 3. Jenson Button McLaren-Mercedes 1m44.804s + 0.423 4. Lewis Hamilton McLaren-Mercedes 1m44.809s + 0.428 5. Fernando Alonso Ferrari 1m44.874s + 0.493 6. Felipe Massa Ferrari 1m45.800s + 1.419 7. Nico Rosberg Mercedes 1m46.013s + 1.632 8. Michael Schumacher Mercedes engin tími 9. Adrian Sutil Force India-Mercedes engin tími 10. Paul di Resta Force India-Mercedes engin tími 11. Sergio Perez Sauber-Ferrari 1m47.616s + 2.685 12. Rubens Barrichello Williams-Cosworth 1m48.082s + 3.151 13. Pastor Maldonado Williams-Cosworth 1m48.270s + 3.339 14. Sebastien Buemi Toro Rosso-Ferrari 1m48.634s + 3.703 15. Bruno Senna Renault 1m48.662s + 3.731 16. Jaime Alguersuari Toro Rosso-Ferrari 1m49.862s + 4.931 17. Kamui Kobayashi Sauber-Ferrari engin tími 18. Vitaly Petrov Renault 1m49.835s + 3.438 19. Heikki Kovalainen Lotus-Renault 1m50.948s + 4.551 20. Jarno Trulli Lotus-Renault 1m51.012s + 4.615 21. Timo Glock Virgin-Cosworth 1m52.154s + 5.757 22. Jerome D'Ambrosio Virgin-Cosworth 1m52.363s + 5.966 23. Daniel Ricciardo HRT-Cosworth 1m52.404s + 6.007 24. Tonio Liuzzi HRT-Cosworth 1m52.810s + 6.413
Formúla Íþróttir Mest lesið Féll á lyfjaprófi á HM íslenska hestsins og missir silfur: „Eins og ég sé glæpamaður“ Sport Fantasýn: Bogi Nils þarf að vara sig og ekkert breyst hjá stjórnarformanni Play Enski boltinn „Þetta svíður mig mjög sárt“ Fótbolti Úr klefaleysi og snjómokstri í að taka við landsliði eða Blikum? Íslenski boltinn Töpuðu fyrir Íslandi en ekki í Meistaradeildinni Fótbolti FIFA: Donald Trump ræður engu um það Fótbolti Baulað á Figo í Barcelona: „Portúgalinn er ekki velkominn hér“ Fótbolti Sveindís Jane að missa góðan liðsfélaga: „Sakna þín strax“ Fótbolti Sjáðu Meistaradeildarmörkin hjá manninum sem United gat ekki notað Fótbolti „Ótrúlega gaman að sjá þessa stelpu dafna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Segir ákvörðunina þá erfiðustu sem hann hafi tekið Tekur marga milljarða með sér og gæti snúið aftur með öðru liði Verstappen vann og Piastri úr leik á fyrsta hring Verstappen á ráspól eftir skrautlega tímatöku Norris fljótastur á síðustu æfingu í Baku Piastri sagt að hleypa Norris fram úr en Verstappen vann Verstappen á ráspól með hraðasta hring sögunnar Sjá meira