Sameiginleg tilkynning frá seðlabönkum Bandaríkjanna, Evrópu, Kanada, Japan og Sviss í dag, um að þeir ætli að bregðast við vanda á fjármálamörkuðum með því að viðhalda nægu lausu fé í umferð, og aðstoða ríki við endurfjármögnun skulda, þykir vera mikilvægasta viðspyrna við vaxandi skuldavanda sem komið hefur fram á undanförnum mánuðum. Um þetta eru fréttaskýrendur breska ríkisútvarpsins BBC og Wall Street Journal sammála.
Miklar hækkanir
Markaðir brugðust við fréttunum með miklum hækkunum, bæði í Evrópu og Bandaríkjunum. Nasdaq vísitalan hækkaði um 4,17% og Stoxx Europe, samræmd vísitala markaða í Evrópu, um 3,16%. Samkvæmt fréttum New York Times og Wall Street Journal var það seðlabankastjóri Bandaríkjanna Ben Bernanke sem hjó á hnútinn og leiddi seðlabankastjórana saman að borðinu. Aðgerðaráætlunin var síðan sameiginlega útbúin, en meginatriði hennar er að seðlabankarnir ábyrgist það að nægt fé sé í umferð svo hagvöxtur geti myndast á ný, hvorki meira né minna.
Engin vandamál eru þó leyst enn. Skuldavandi ríkja er enn mikill, ekki síst í Suður-Evrópu þar sem um eiginlegan bráðavanda er að ræða. Álag á tíu ára skuldabréf Portúgals, Ítalíu, Spánar og Grikklandas er enn í hæstu hæðum, á bilinu 5 til 7 prósentustig ofan á millibankavexti, sem gerir það nær ómögulegt fyrir ríkin að endurfjármagna skuldir sínar. Áætlun seðlabankanna þykir skipta sköpum fyrir þetta vandamál. Þeir hafa í reynd með þessu tekið fram fyrir hendurnar á stjórnmálamönnum í Evrópu, sem ekki hafa náð að koma sér saman um hvernig björgunarsjóður Evrópusambandsins skildi notaður, eða fjármagnaður að fullu. Samþykki um stækkun hans úr 440 milljörðum evra í 1.000 milljarða liggur fyrir, en endanleg útfærsla á því hvernig nota á sjóðinn liggur ekki fyrir.
Lykilhlutverk
Bernanke hefur gegnt lykilhlutverki þegar kemur að viðbrögðum við vanda á fjármálamörkuðum á heimsvísu á undanförnum árum, enda Seðlabanki Bandaríkjanna sá valdamesti í heimi. Þannig fór hann fyrir aðgerðum bandarískra stjórnvalda, ásamt Hank Paulson, þáverandi fjármálaráðherra Bandaríkjanna, haustið 2008 þegar bankar féllu saman eins og spilaborgir um allan heim. Hann hefur sjálfur sagt að efnahagur heimsins glími við langtímavandamál vegna mikilla skulda, sem ekki verði leyst með skammtímalækningum. Viðbrögð seðlabankanna verða því að skoðast í því ljósi.
Fréttaskýring: Enn kemur Bernanke til bjargar
Magnús Halldórsson skrifar

Mest lesið

Besti svefninn níu mínúturnar á milli snúsa
Atvinnulíf

Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu
Viðskipti innlent

Ný forysta Félags kvenna í atvinnulífinu kjörin
Viðskipti innlent

X-ið hans Musk virðist liggja niðri
Viðskipti erlent

Högnuðust ríkulega en draga samt saman seglin í heimabyggð
Viðskipti innlent

Landsbankinn og Arion lækka vexti
Neytendur

Kallar eftir virðingu eftir tollahótanir Trump
Viðskipti erlent

Þorsteinn Már hættir hjá Samherja
Viðskipti innlent

