Bakþankar

Þessir tillitslausu ökumenn

Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar
Ástæða þess að við stöðvum þig Ragnheiður er sú að þú gafst ekki stefnuljós þegar þó ókst út af hringtorginu," sagði hjálmklæddur lögregluþjónninn við mig alvarlegur í bragði. Mér vafðist tunga um tönn, sagði „ó!"

Ég hélt að lögregluþjónninn hefði verið að beina umferðinni annað vegna umferðaróhapps sem hefði kannski átt sér stað lengra fram undan þegar hann gaf mér merki um að sveigja inn á bílastæði. Fattaði ekkert að hann ætti erindi beinlínis við mig. Eins og álfur gat ég síðan ekki sýnt fram á ökuréttindi, þar sem ökuskírteinið mitt lá í veskinu á stofuborðinu heima. Skjálfhent gat ég þó gert grein fyrir mér með öðrum skilríkjum sem lögregluþjónninn tók með sér til nánari athugunar. Á meðan sat ég hnípin í bílnum og beið.

„Kjósir þú að tjá þig um brotið í skýrslu, er þér eindregið ráðlagt að segja satt og rétt frá," sagði hann við mig því næst. Það kom á mig fát svo hann spurði örlítið vingjarnlegar hvort ég vildi segja eitthvað sérstakt í skýrslunni. Ég neitaði því, vissi ekki hvað ég hefði mér til málsbóta svo ég kvittaði bara undir sem „hinn ákærði". Í póstinum á ég von á sekt.

Ég hafði heyrt í útvarpinu mörgum dögum áður að lögreglan væri með sérstakt átak í gangi þar sem fylgst væri með hvort ökumenn gæfu stefnuljós. Tekið var fram að óvenju margir virtust „gleyma" að gefa stefnuljós út úr hringtorgum. Ég man að það hnussaði í mér yfir þessum tillitslausum ökumönnum sem hirtu ekki um að gefa þeim merki sem biðu færis að komast inn á hringtorg. Í þéttri síðdegisumferðinni hafði ég margoft látið þetta fara í taugarnar á mér.

Ég hafði hins vegar ekki áttað mig á því að ég væri ein af þeim tillitslausu. Að ég væri svo upptekin af eigin ferðalagi að sú einfalda aðgerð að smella stefnuljósinu á gleymdist. Samferðamönnum mínum til óþæginda og ama og jafnvel hættu. „Þú manst þetta næst, Ragnheiður," sagði lögregluþjónninn við mig að lokum, og ég skammaðist mín.

Það sem eftir var ferðarinnar gætti ég þess að fara ekki of hratt, gefa stefnuljós og að hæfileg hemlunarvegalengd væri milli mín og þess fyrir framan mig. Ég virti stöðvunarskyldur, biðskyldur, hægrirétt og einstefnureglu og hét því í huganum að falla ekki aftur í hóp hinna tillitslausu ökumanna.

 





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×