Gagnrýni

Já, Dorrit

Yfirstéttin komin á svið sem skotspónn.
Yfirstéttin komin á svið sem skotspónn.

Nei, Dorrit!

Mánudagsleikhúsið á sunnudagskvöldi í Iðnó

Stuttur leikþáttur byggður á viðtali forsetahjónanna sem Joshua Hammer tók fyrir Condé Nast Portfolio. Leikgerð: Þórarinn Leifsson. Leikarar: Ásdís Sif Gunnarsdóttir, Snorri Ásmundsson, Davíð Þór Jónsson, Kristín Anna Valtýsdóttir, Guðrún Ásmundsdóttir. Hljóðmynd: Ragnar Kjartansson og Davíð Þór Jónsson. Aðstoðarleikstjóri: Þorsteinn Bachman. Leikstjóri: Auður Jónsdóttir.

Að sviðsetja viðtal er frábær hugmynd. Umgjörðin er myndlistarverk sem gott er að hvíla augun á. Orðin sem sögð eru hríslast niður í kokið á áhorfendum sem geta ekki annað en hlegið þótt hálf skömmustuleg tilfinning fylgi þar með.

Þau sitja við borð og viðtalið virðist hafa tekið þó nokkuð marga klukkutíma því af og til dottar hinn ráðvillti forseti og á meðan spjalla frúin og blaðamaðurinn um þessa þjóð og þennan forseta og þetta bankahrun og það líf sem hún lifir í þessu landi sem hún hafði aldrei séð fyrr en hún fylgdi Ólafi þangað.

Snorri Ásmundsson, sem er gjörningalistamaður, fer með hlutverk Ólafs í leiknum og þó svo að hann sé svolítið óskýrmæltur er stirðbusahættinum og vélrænunni vel komið til skila.

Guðrún Ásmundsdóttir læðist af og til inn og hellir víni í glös Dorritar og blaðamannsins meðan skýrt er sýnt að forseti vor drekkur aðeins vatn. En þótt hann drekki vatn er hann samt eins og ölvaður. Meðhlæjendur geta orðið hífaðir og stundin verður áfeng eins og vín eins og stendur í kvæðinu.

Ásdís Sif Gunnarsdóttir er eins ólík Dorrit eins og hugsast getur og það var gott, það gerði fáránleikann stærri. Hér er um myndbrot úr raunveruleikanum að ræða. Davíð Þór Jónsson fer með hlutverk blaðamannsins. Hann heldur ætlun sinni allan tímann og hundurinn litli sem talar mannamál í meðförum Kristínar Önnu Valsdóttur undirstrikar orð Dorritar á skemmtilegan hátt.

Elísabet Brekkan

Niðurstaða: Ótrúlega góð hugmynd, en ekki eins gott leikrit.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×