Fastir pennar

Grillir í sátt?

Ólafur Stephensen skrifar

Mögulega grillir nú í útlínur sáttar um fiskveiðistjórnunina í starfshópi sjávarútvegsráðherra. Þar mun yfirgnæfandi meirihluti vera fyrir svokallaðri samningaleið, eins og Fréttablaðið hefur sagt frá. Hún felur í sér fráhvarf frá fyrningarleiðinni, sem ríkisstjórnin lagði upp með, en gerir ráð fyrir að veiðiheimildum verði að stærstum hluta endurúthlutað til útgerðarinnar í sömu hlutföllum og nú, en á grundvelli samninga og komi gjald fyrir. Þannig verði undirstrikað að veiðiheimildirnar séu þjóðareign en ekki í einkaeigu og að kvótinn sé afnotaréttur, ekki eignarréttur.

Sömuleiðis er þorri nefndar­manna á því að nauðsynlegt sé að setja skýrt ákvæði um þjóðareign á auðlindum í stjórnar­skrána. Þar eru fulltrúar Landssambands íslenzkra útgerðarmanna þó undantekningin.

Gagnrýnin á fiskveiðistjórnunarkerfið hefur einkum verið af tvennum toga. Annars vegar er gagnrýnt að útgerðarmenn hafi í upphafi fengið kvótann gefins og farið síðan með hann sem sína einkaeign, margir selt hann aftur og farið út úr greininni með milljarða í vasanum. Hins vegar hafa menn gagnrýnt frjálsa framsalið á kvótanum, aðallega út frá hagsmunum einstakra byggðarlaga, sem hafa misst frá sér kvóta.

Nú er rætt um það að hluti af samningaleiðinni verði að fimm til tuttugu prósent kvótans fari í pott, sem úthlutað verði úr samkvæmt byggðasjónarmiðum eða öðrum félagslegum sjónarmiðum. Þá verði framsalið takmarkað með einhverjum hætti.

Verði auðlindagjald hækkað með samningaleiðinni kemur það til móts við þá gagnrýni að útgerðin hafi fengið kvótann endurgjaldslaust. Slík gjaldtaka, sem yrði ekki aðallega til málamynda, eins og verið hefur undanfarin ár, yrði þó að vera hluti af stærra samkomulagi um að allar atvinnugreinar sem nýta náttúru­auðlindir, þar á meðal orkugeirinn, greiði gjald fyrir afnotaréttinn. Auðlindaákvæði í stjórnarskrá gengi í sömu átt. Um það ríkir í raun býsna breið samstaða meðal stjórnmálaflokkanna, sem hafa verið sammála um þörfina á slíku ákvæði þótt deilt hafi verið um orðalagið.

Hinu verða menn að átta sig á að með því að takmarka framsal og taka stærri hluta kvótans frá til úthlutunar á grundvelli byggða- og félagslegra sjónarmiða, er dregið úr skilvirkni og hagkvæmni sjávarútvegsins í heild. Þannig er gengið erinda sérhagsmuna einstakra byggðarlaga á kostnað heildarhagsmuna og sjávarútvegurinn gerður líkari þeirri ríkisstyrktu og félagslega reknu atvinnugrein, sem hann er í mörgum nágrannalöndum okkar.

Út frá sjónarmiði útgerðarinnar ætti að vera skynsamlegt að fallast á hækkun auðlindagjaldsins og stjórnarskrárákvæðið, ef það mætti verða til þess að hagkvæmni fiskveiðistjórnarkerfisins yrði betur tryggð.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×