Bakþankar

Brynhildur Björnsdóttir: Málsháttatal

Brynhildur Björnsdóttir skrifar
Þá er lokið stærstu málsháttaveislu ársins. Milljón málshættir, dulbúnir sem súkkulaðiegg og umvafðir sælgæti í skrjáfpappír, hafa nú runnið inn í hug og hjarta landsmanna og -kvenna öllum til umhugsunar og vonandi sumum til hugljómunar. Það er frábært hversu margir hafa áhuga á málshættinum inni í páskaegginu, sumir réttlæta jafnvel óhóflega súkkulaðineyslu um páska með því að þeir kaupi páskaeggin bara fyrir málshættina.

Einhverjir líta á málsháttinn sinn sem skilaboð frá framtíðinni, að eggið sé myndlíking fyrir framtíð sem enginn veit hvað ber í skauti sér annað en fullt af súkkulaði og síðan leyndardómsfull skilaboð um hvað sé í vændum eða hvernig sé best að haga lífi sínu fram að næstu páskum.

Margir settu málsháttinn sinn (enginn þorir að viðurkenna að hafa fengið fleiri en einn) sem stöðu á fésbókinni. Ég gerði það ekki. Þið sem söknuðuð míns málsháttar úr flórunni fáið hann hér: Betri er lítill fiskur er tómur fiskur. Sem segir mér að litlu ungarnir sem skrifa málshættina í skemmtilegu súkkulaðiverksmiðjunni (sem minnir ekkert á barnaþrælabúðirnar þar sem alvöru súkkulaði er búið til) láti ekki prófarkalesa skrif sín. Trúleysinginn á heimilinu fékk: Trúin flytur fjöll. Málsháttaunnendur eru þó ekki skildir eftir grátandi á berangri eftir páskana, því finna má málshætti og heilræði víðar en í páskaeggjum.

Til dæmis í dagbókum frá dagbókaútgáfunni Varmá sem sér mörgum fyrirtækjum fyrir dagbókum handa starfsmönnum. Þar má rekast á frábæra og sjaldséða málshætti, heilræði og gamanmál sem auðga daga og vikur þeirra sem þurfa að skipuleggja sig á vinnustað. Ég á svona bók og hlakka til í ágúst þegar ég get velt fyrir mér setningunni: „Jafnvel fegursta kona getur ekki gefið meira en hún á".

Í október býðst mér að hugleiða að: „kvenkyn allra tegunda er hættulegast þegar það sýnist vera að hopa" og í þriðju viku desember skal brjóta heilann um þetta: „Það var leiðinlegt í saumaklúbbnum í kvöld - þær mættu allar." Í mars fékk ég hins vegar að smjatta á spekinni: „Frjálsar fóstureyðingar eru eingöngu studdar af fólki sem þegar hefur fengið að fæðast."

Ef einhver þykist sjá kvenfyrirlitningu í þessum orðum, og jafnvel beinar árásir á ungar konur, ætti sá hinn sami að líta á eigið barn og muna að aldrei er góð ýsa of oft freðin og ei var hátíð fátíð í þátíð. Sem það nú er.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×