Jólin

Sætar súkkulaðispesíur

Súkkulaðispesíur Guðnýjar Margrétar

75 gr hveiti

25 gr spelt

100 gr dökkar súkkulaðispænir

25 gr dökkur púðursykur

50 gr strásykur

1/4 tsk vanilludropar

100 gr smjör

ljósir súkkulaðidropar

Aðferð:

1) Blanda saman þurrefnum.

2) Mylja og hnoða kalt smjör og súkulaðispænir saman við með höndunum.

3) Bæta við vanilludropum, hnoða vel saman.

4) Búið til lengju, ca 3 sm í þvermál, vefjið inn í plastfilmu og kælið í ca 1 klst.

5) Skerið lengjuna niður í frekar þunnar kökur, raðið á bökunarplötu og bakið í 10-15 mín í 200° heitum ofni.

6) Um leið og kökurnar koma út úr ofninum er settur einn súkkulaðidropi ofan á hverja köku.






×