Bakþankar

Mótmælendur Íslands

Gerður Kristný skrifar
Stjórnmálamenn voru fljótir að stökkva á þá hugmynd að útbúa minnisvarða um Helga Hóseasson. „Þeir eru mjög margir sem hafa áhuga á þessu. Ég finn fyrir því í samfélaginu að þótt fólk sé ekki endilega sammála öllu sem Helgi sagði, þá ber það virðingu fyrir þeirri staðfestu sem hann sýndi í sinni áralöngu baráttu," sagði Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingar í borgarstjórn, inni á Vísi. Þá hafði RÚV þegar sagt frá því að margir hefðu skráð sig á síðu inni á Snjáldrinu til að lýsa yfir áhuga sínum á minnisvarða um Helga.

Orðalagið „endilega sammála öllu" er skemmtilegt hjá Degi en Helgi barðist fyrir því í nær fjörutíu ár að fá skírnarsáttmálann sinn ógildan. Davíð Oddsson, skyrslettur og sýklar blönduðust líka inn í baráttuna. Styttur eru minnisvarðarnir sem íslenskir karlmenn hafa reist hverjir öðrum frá alda öðli. Ingólfur Arnarson fékk styttu en ekki Hallveig, kona hans, og komu þau samt hingað á sama skipinu. Það eru til fleiri leiðir til að muna eftir fólki en að reisa af því styttu.

Í tilfelli Helga mætti til dæmis skreyta leið 14 sem ekur eftir Langholtsveginum með furðulegu slagorðunum sem stóðu á skiltunum hans. Þannig gæti boðskapurinn flust víðar þótt ekki væri nema um nokkurra vikna skeið. Síðan gæti borgin fengið lagahöfund til að semja lag um Helga sem kennt yrði í leikskólum. Dúfur geta ekki kúkað á lög. Margir gengnir borgarbúar eiga skilið að þeirra sé minnst, svo sem Laufey Jakobsdóttir, amman í Grjótaþorpinu. Ekki fékk hún áletraða hellu, lágmynd eða beð sér til heiðurs á heimaslóðum sínum en Megas heldur minningu hennar á lofti með því að syngja um hana í Krókódílamanninum. Þar birtist hún sem sá bjargvættur sem hún var í lifanda lífi.

Eitt er það sem mér finnst fallegt í umræðunni um minnisvarðann hans Helga en það er sú hugmynd að verðlauna einhvern fyrir staðfestu - jafnvel þótt staðfestan hafi ekki komið neinu sérstöku til leiðar. Fyrir fólkið í landinu yrði minnisvarðinn þó vafalítið annað og meira en aðeins til minningar um þennan eina mann og staðfestuna miklu. Eftir eitt viðburðaríkasta ár í sögu þjóðarinnar þar sem gengið hefur á meiru en nokkurn óraði fyrir grunar mig að fólk vilji fyrst og fremst minnisvarða um þrautseigjuna sem það hefur nú sjálft þegar sýnt og þarf að sýna eilítið lengur.

 






×