Kæru skuldunaut 10. júlí 2009 00:01 Ég fyrirgef ykkur alveg. Fyrirgef ykkur að hafa steypt mér, börnum og tilvonandi tengdabörnum og barnabörnum í skuldafen sem er svo djúpt að enginn kemst yfir nema fálkinn fljúgandi. Fyrirgef ykkur að hafa talið mér trú um að þið væruð rosalega flottir feðgar sem vilduð mér allt hið besta, svona eins og Guð og Jesús. Ég fyrirgef ykkur að hafa hrapað niður um guð veit hvað mörg sæti á listanum yfir ríkustu menn í heimi. Eins og ég var nú stolt af því að eiga fulltrúa þar. En sem betur fer eruð þið samt á honum enn þá. Ég fyrirgef ykkur þetta allt. Og skil ykkar aðstöðu. Mikil ósköp. Það er auðvitað vonlaust að koma með peninga inn í landið núna, eins og annar ykkar sagði í viðtali skömmu eftir þetta óskemmtilega bankahrun í fyrrahaust. Við myndum áreiðanlega eyða þeim í tóma vitleysu eins og að borga skuldir eða halda úti elliheimilum og ungbarnavernd og svoleiðis rugli. Peningar eru mikið betur geymdir í kyrrstöðu í heitu löndunum. En ég get því miður ekki gefið ykkur eftir þessa smáaura sem þið skuldið mér. Það má reyndar deila um það hvað þetta er mikið, sumir segja að sem eigendur bankans sem tók stærstu lán í heimi hjá einhverju fólki í Bretlandi og Hollandi skuldið þið okkur ekki bara þúsundir milljarða heldur líka æruna á alþjóðavettvangi. Ég ætla ekkert að eltast við það hér. Ég vil bara að þið borgið mér, núverandi eiganda bankans sem lánaði ykkur peninginn til að kaupa hinn bankann af mér, það sem þið skuldið. Ef þið eigið ekki fyrir þessu skal ég ekkert vera að leiðindast yfir því. Þið getið þá bara unnið skuldina af ykkur. Reyndar treysti ég mér ekki til að bjóða ykkur upp á störf í þeim geira þar sem þið hafið mesta reynslu. En hvítu skórnir sem áður prýddu þilfar snekkju við Miðjarðarhafið passa vel við margt annað en jakkaföt, til dæmis fiskvinnslugalla eða hvítan ræstibúning á spítala. Eftir svona tvö þúsund ársverk á venjulegum verkamannalaunum má vel vera að ég fyrirgefi ykkur líka að hafa ekki ætlað að borga aftur peningana sem ég lánaði ykkur til að kaupa banka af mér. Ég hef alveg efni á því að vera göfug. Ég á nefnilega banka. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Við getum öll stutt við lesskilning barna - Gleðilegan dag læsis Auður Soffía Björgvinsdóttir Skoðun Lokun Leo Seafood - Afleiðing tvöföldunar veiðigjalda Sigurgeir B. Kristgeirsson Skoðun Umfjöllun Kastljóss Þorgrímur Sigmundsson Skoðun Vægið eftir sem áður dropi í hafið Hjörtur J Guðmundsson Skoðun Að gjamma á stóra grábjörninn getur haft afleiðingar! Davíð Bergmann Skoðun Kyn og vægi líkamans Gunnar Snorri Árnason Skoðun Við erum ekki valdalausar. Við erum óbrjótandi Noorina Khalikyar Skoðun Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps reynir að skrá fólk út úr samfélaginu Guðrún M. Njálsdóttir,Ragna Ívarsdóttir,Þröstur Sverrisson Skoðun Getur þjóð orðið of rík? – Ádeila frá Noregi sem getur átt við um Ísland Júlíus Valsson Skoðun Landsbyggðin án háskóla? Ketill Sigurður Jóelsson Skoðun
Við getum öll stutt við lesskilning barna - Gleðilegan dag læsis Auður Soffía Björgvinsdóttir Skoðun
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps reynir að skrá fólk út úr samfélaginu Guðrún M. Njálsdóttir,Ragna Ívarsdóttir,Þröstur Sverrisson Skoðun
Við getum öll stutt við lesskilning barna - Gleðilegan dag læsis Auður Soffía Björgvinsdóttir Skoðun
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps reynir að skrá fólk út úr samfélaginu Guðrún M. Njálsdóttir,Ragna Ívarsdóttir,Þröstur Sverrisson Skoðun