Jöfnuður og réttlæti Þórhildur Elín Elínardóttir skrifar 9. mars 2009 12:45 Á köldu haustkvöldi í fyrndinni féll ég á einni svipstundu kylliflöt fyrir kennaranum mínum, síðhærðum gaur með hornspangagleraugu. Á köldu haustkvöldi í fyrndinni féll ég á einni svipstundu kylliflöt fyrir kennaranum mínum, síðhærðum gaur með hornspangagleraugu. Framvindan var mjög í anda rauðu ástarsagnanna þar sem heimurinn stóð kyrr, ástríðufull hjörtun slógu í takt og hvorugt þurfti að tala. Hið síðastnefnda átti kannski ekki alveg við, því reyndar kviknaði ástarbríminn á ræðunámskeiði í menntó. Hann var hinn óstjórnlega heillandi leiðbeinandi en ég andaktugur nemandinn sem hefði vaðið eld og brennistein án umhugsunar, bæði á hápunkti dramatískra tilþrifa efri unglingsára. Þremur börnum og nokkrum raunveruleikaprófum síðar er ég oftast enn á þeirri skoðun að þetta októberkvöld fyrir næstum aldarfjórðungi hafi verið ágætlega skipulagt. Einhvers staðar á leiðinni gekkst félagi minn við augljósri köllun sinni, sneri sér að stjórnmálum og enginn varð hissa. Ég man reyndar eftir því í fyrsta prófkjörinu að hafa óað við öllu atinu og dáist raunar enn að þeim eldmóði sem fær svo marga til að snúa tilverunni á hvolf í þeim tilgangi að koma sjónarmiðum sínum að. Því prófkjör eru svolítið eins og akkorðsvinna í fiski: Mikið fjör, en myndin af endlausum karfaflökunum límist innan á augnlokin. Um þessar mundir hafa óteljandi frambjóðendur verið á sólarhringsvaktinni vikum saman við að úthugsa aðferðir til að ná árangri á listum fyrir komandi þingkosningar. Í kringum hvern og einn er stórfjölskyldan og fjöldi vina á kreiki við aðstoðarstörf. Í okkar tilfelli breyttist heimilið áður en við var litið í kosningaskrifstofu. Allar útréttar hendur eru virkjaðar linnulaust við alls kyns undirbúning svo jafnvel sex ára dóttirin hefur náð mikilli leikni við að líma frímerki með glæsibrag á meðan sú þriggja ára eflir okkur til dáða með hvatningarsöng: Áfram Ísland! (klapp, klapp, klapp) Áfram Ísland! Eftir miklar skoðanir einatt við eldhúsborðið var einmitt viðeigandi að með áslætti búsáhalda væri loks tekið mark á vilja þjóðar til breytinga. En stefnur ráðast ekki síður af fólki en flokkum og það er ekkert einkamál hverjir veljast í sætin. Hugsjónir um jöfnuð og réttlæti eiga hljómgrunn sem aldrei fyrr og þessa dagana leggjum við grunn að því sem koma skal í vor. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þórhildur Elín Elínardóttir Mest lesið Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen Skoðun
Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson Skoðun
Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson Skoðun