Bakþankar

Staðan

Guðmundur Steingrímsson skrifar
Ég skrifaðist á við finnskan vin minn á Facebook í gær. Kreppuna bar á góma, enda sameiginlegt áhugamál þjóðanna. Eftir að Finnland hrundi hér einu sinni reis upp miklu betra land á eftir, sagði félagi minn. Finnar eru búnir að gera allt það sem Obama ætlar að gera núna í Bandaríkjunum. Byggja upp hátækni- og líftækniiðnað og miklu traustara þjóðfélag í alla staði, með fjölbreyttara atvinnulífi. Skynsemin réði för.

SVO fann ég hvernig við hefðum skálað í bjórnum eftir þessi orð ég og Finninn ef við hefðum setið á pöbb í Bretlandi eins og áður fyrr þegar við spjölluðum, en ekki á Facebook, þótt þar sé reyndar einnig hægt að skála rafrænt. Þetta var vel sagt og snerti mínar íslensku taugar. Ég gríp til líkingar að íslenskum sið: Handan við brúnina, ef við höldum áfram að klífa bergið, bíður betra land, sanngjarnara og heilbrigðara.

LÍTUM á. Stundum er talað um skuldirnar allar, þessa 2000 milljarða eða svo, eins og þær séu um það bil að fara að skella á þjóðinni núna á mánudaginn. En þetta er ekki svo. Hér þarf að halda ró sinni. Hafa yfirsýn yfir vandann. Um 600 milljarðar af þessu eru lán í gjaldeyrisvarasjóð, sem verður vonandi inni á bankareikningi og safnar vöxtum.

SVO er það Icesave. Þar er mikilvægt að eignirnar komi sem mest á móti skuldunum. Þá þurfa menn að vera lunknir, ekki flana að neinu, bíða rólegir og þá mun okkur vel farnast. Líka þarf að halda því skýrt til haga í því máli að við höfum vitaskuld allan rétt á því að láta reyna á skuldbindingar okkar fyrir alþjóðlegum dómsstólum.

SVO er það atvinnuleysið. Það er mest í byggingariðnaði, verslun og flutningum. Klassíska ráðið við þessu er að örva framkvæmdir. Í ofanálag þurfum við, af natni, að sjá til þess að nýir og gamli möguleikar um allt land séu nýttir og sprotar vaxi og dafni. Það gerðu Finnar.

ÞEGAR öllu er á botninn hvolft getum við unnið bug á þessum vanda, þ.e.a.s. ef við höldum vel á spöðum, sleifum, pottum og pönnum og blásum til búsáhaldaendurreisnar. Aðalatriðið er að panikera ekki. Vinna úr málunum skref fyrir skref. Og síðast en ekki síst: Vita hvert förinni er heitið. Til betra Íslands undir taktföstum sleifar- og pönnuslætti. Mæltu manna heilastur, Oskari Kuusela. Skál.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×