Styttur bæjarins Karen Dröfn Kjartansdóttir skrifar 4. nóvember 2008 06:00 Allt fram í lok september snerist helsta þrætuefni þjóðarinnar um það hvort reisa ætti styttu af Tómasi Guðmundssyni Reykjavíkurskáldi. Sjálfstæðismaðurinn Kjartan Magnússon, sem lagði fram hugmyndina, þótti við hæfi að styttan stæði í Hljómskálagarðinum (Gísli Marteinn var einmitt nýbúinn að stinga upp á að þar yrði kaffihús) eða við sjálft tónlistarhúsið. Svandísi Svavarsdóttur leist illa á tillöguna, sagði hana gamaldags og stirða auk þess mengaða af karllægum viðhorfum. Þetta voru síðustu dagar góðærisins. Ég ræddi við færeyskan kunningja um daginn sem er einkar vel að sér í stjórnmálasögu Íslendinga. Ég sagði honum að skáldið hann Einar Már Guðmundsson hefði gefið Færeyingum norðurljósin árið 2006 með þessum orðum: „Ég hef heldur aldrei heyrt að nokkur Færeyingur hafi reynt að selja norðurljósin eins og skáldið Einar Benediktsson, sem bauð þau til kaups í London fyrir hundrað árum og ekki óviðeigandi að rifja upp nú þegar íslenskir kaupsýslumenn fara um heiminn eins og víkingar með greiðslukort." Sá færeyski sagði að ástæðan fyrir því að samlandar hans hefðu ekki reynt að selja Bretunum þessa fegurð væri sú að þeir væru ekki jafn hugmyndaríkir. Íslendingar ættu að herða upp hugann og hætta þessum sjálfsásökunum um að flatskjáakaup hefðu steypt þjóðinni í glötun. Aldrei hafi hann hitt Færeying sem hafi haldið því fram að kaup á VHS-tækjum hafi orsakað kreppuna þar í landi á tíunda áratugnum. Það hafi óhæfir ráðamenn og spilltir valdhafar gert. Færeyingurinn hélt því svo fram að Íslendingar væru í huga hans þjóðin sem hefði fyrst stigið fram fyrir skjöldu og viðurkennt sjálfstæði Eystrasaltslandanna, þá full af hugrekki og stórmennsku. Mér varð þá hugsað til listaverksins Stuðnings við Túngötu. Það gáfu Lettar Íslendingum sem þakklætisvott og létu eitt kvæða sinna stórskálda fylgja: Við erum smáþjóð /Við munum verða eins stór / og hugur okkar stendur til. Ég fór og skoðaði þetta verk eftir símtalið og áttaði mig á mikilvægi styttna bæjarins, hve þær geta glatt mann með því að minna á fegurð, göfgi eða vináttu. Ég hlakka til þess tíma þegar tal um styttuna af Tómasi verður aftur tímabært. Og talandi um það sem er tímabært, það er texti lagsins Ísland sem Spilverk þjóðanna söng svo sannarlega um þessar mundir. „Þú og ég, við erum fimmmenningar, víkingar, aríar, Íslendingar! Fjallkonan, hún tyllir sér á stein, fær sér smók og hvílir lúin bein …alein…" Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Karen Kjartansdóttir Mest lesið Gerum Fjarðabyggð spennandi fyrir ungt fólk Anna Þórhildur Kristmundsdóttir,Júlíus Óli Jacobsen,Magnea María Jónudóttir,Þórunn Ólafsdóttir Skoðun Sorp víkur fyrir mannlífi Hjördís Ýr Johnson Skoðun Af hverju skiptir máli að kjósa í Garðabæ? Bryndís Matthíasdóttir Skoðun Reykjavík þarf Regínu Alma D. Möller Skoðun Fullveldið er falið í gagnaeign Hjörtur Smárason Skoðun Ábyrgð sveitarfélaga varpað á aðstandendur Jóna Elísabet Ottesen Skoðun Vörumst vinstri stjórn og eftirlíkingar í Hafnarfirði Einar Geir Þorsteinsson Skoðun Ný Heiðmörk fyrir Reykvíkinga Sara Björg Sigurðardóttir Skoðun Byggjum upp íbúðir fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur svo börnin geti flutt að heiman Hildur Rós Guðbjargardóttir Skoðun Kársnes á krossgötum Máni Þór Magnason Skoðun
Gerum Fjarðabyggð spennandi fyrir ungt fólk Anna Þórhildur Kristmundsdóttir,Júlíus Óli Jacobsen,Magnea María Jónudóttir,Þórunn Ólafsdóttir Skoðun
Byggjum upp íbúðir fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur svo börnin geti flutt að heiman Hildur Rós Guðbjargardóttir Skoðun
Gerum Fjarðabyggð spennandi fyrir ungt fólk Anna Þórhildur Kristmundsdóttir,Júlíus Óli Jacobsen,Magnea María Jónudóttir,Þórunn Ólafsdóttir Skoðun
Byggjum upp íbúðir fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur svo börnin geti flutt að heiman Hildur Rós Guðbjargardóttir Skoðun