Bakþankar

Pjatla fyrir píku

Gerður Kristný skrifar

Þegar Krúttkynslóðin tók að vekja athygli fjölmiðla nefndi hún engar steikur þegar hún var spurð um uppáhaldsmatinn sinn. Henni þótti súkkulaðikaka og mjólk best. Eins og hlédrægt sveitafólk nýkomið til byggða vildi það ómögulega láta hafa neitt fyrir sér og hvíslaði óöruggt í hljóðnemann. Þetta hæfileikaríka fólk virtist of gott fyrir þennan heim og af frásögnum þess sjálfs að dæma virtist því líða best á árabáti á leiðinni út í afskekktan vita þar sem það gat sinnt list sinni í friði, ekki ólíkt Múmínpabba.

Í vetur kom upp sá kvittur að krúttin væru dauð. Því var haldið fram í blaðagreinum og ung kona hannaði tískulínu til að sanna þessa andlátsfrétt en auðvitað var hún ótímabær. Krúttin er spræk sem aldrei fyrr. Nýverið komst hún í fréttir þegar myndband Sigur Rósar var bannað á YouTube því þar sést allsbert fólk að leik. Viðbrögð trommarans voru eftirfarandi í 24 stundum: „Þetta er alveg dæmigert. Við bjuggumst alveg við einhverju svona. Það virðist vera allt í lagi að sýna fáklæddar konur að glenna sig, eins [sic] lengi og það er einhver pjatla fyrir píkunni á þeim ... Þarna er bara fallegt fólk að leika sér í sakleysi sínu, ekkert gróft."

Pjatla fyrir píku, sagði maðurinn. Það er nákvæmlega það sem oft skilur á milli feigs og ófeigs en samanburðurinn við það sem annars er í boði á músíkstöðvunum er auðvitað athyglisverður. Músíkstöð Skífunnar spilar myndbandið bara á kvöldin og á næturnar en leikur samt nýjasta lag Ushers „Love in this Club" þar sem hann kveðst ólmur vilja stunda kynmök á skemmtistað. Er það ekki annars kolólöglegt? Í lok myndbandsins sést Usher munda sig til við að hafa mök við konu upp við vegg. Auðvitað er það túlkunaratriði hvort hann ætli að ganga svo langt en í ljósi þess sem hann hefur endurtekið í sífellu í laginu eru sterkar líkur á einbeittum brotavilja. Konan hins vegar hverfur og þá er Usher kallinn meira en lítið kjánalegur upp við vegginn.

Auðvitað á Skífan að sýna myndband Sigur Rósar kinnroðalaust. Krúttkynslóðin á það inni hjá okkur að henni sé sýnd virðing annars hverfur hún bara - jafnvel deyr. Ekki get ég hugsað þá hugsun til enda að eitthvað jafnfagurt og hugarheimur krúttanna gufi bara upp. Þegar krúttefnisjafna þarf alla kaldhæðnina sem þrífst í þessum heimi er gott að búa að Sigur Rós.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×