Bakþankar

Pabbi minn, Hugh Hefner

Dr. Gunni skrifar

Þar sem ég sveimaði um Alnetið, eins og of oft vill gerast, í algjöru innihalds- og tilgangsleysi, rakst ég á myndir úr afmæli Playboy-kóngsins Hughs Hefners. Ég gerði óvænta uppgötvun: Hugh er jafnaldri pabba míns, meira að segja hálfu ári eldri en hann. Ótal hugsanir skautuðu um heilann á mér.

Þarna sat gamli maðurinn að halda upp á 82 ára afmælið sitt. Með góðlegt bros gamalmennisins og aðra lúkuna á lærum ungrar vinkonu sinnar. Hinum megin við Hugh sátu tvær ungar ljóskur í viðbót og hugsanlega voru allar þrjár búnar að þjónusta afmælisbarnið fyrr um daginn. Og voru svo kannski á leiðinni í höllina til að veita frekari þjónustu. Það fór hrollur um mig.

En bíðum við. Hvað átti þessi hrollur að fyrirstilla? Var hann ekki bara til marks um ófyrirgefanlega fordóma í garð eldri borgara af minni hálfu? Hvað með það þótt gamli maðurinn sofi hjá ljóshærðum bimbóum og geymi þær eins og kvikfénað í kofanum sínum? Ég meina, hann á peningana, er svaka fínn karl og ef hann finnur stelpur sem eru nógu klikkaðar og með nógu brotna sjálfsmynd til að dúllast utan í sér, er það þá mitt að dæma? Er ekki ástin landamæralaus?

Þá varð mér hugsað til pabba míns. Liði manni ekki hálf undarlega að heimsækja hann í ellismellablokkina ef það væru alltaf þrjár bráðhuggulegar ljóskur á nærbuxunum utan í honum? Jæja pabbi minn, hvernig ertu í pípulagningunni í dag? Hann er fínn, myndi þá Gógó, átján ára, grípa fram í og klappa pabba á lærið og brosa tvíræðu brosi. Jæja, myndi maður þá dæsa og reyna að horfa ekki á pabba og Gógó gerast full náin.

Þaðan af síður vil ég að dóttir mín verði gamalmennakanína þegar hún verður stór. Hvernig hefur kallinn það? gæti maður spurt í símanum með uppgerðar áhuga en vonað innst inni að hann færi að hrökkva upp af svo þessu niðurlægingartímabili myndi nú ljúka.

Hugh er demókrati og hefur gefið fullt af peningum til að berjast gegn ritskoðun - fínn karl, eins og ég segi. Hann á að hafa sofið hjá meira en tvöþúsund konum og segist enn þrælvirkur. Líf hans er draumafyrirmynd fjölmargra karlmanna. En það er nú bara af því við erum svo ógeðslega mikil fífl.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×