EMI opnar dyrnar fyrir Warner 22. febrúar 2007 09:11 Íslandsvinirnir í Coldplay. Mynd/AP
Breski tónlistarrisinn EMI ákvað í gærkvöldi að gera bandaríska útgáfufyrirtækinu Warner Music kleift að leggja fram yfirtökutilboð í samsteypuna. EMI, sem er með stórstjörnur á borð við Íslandsvinina í Coldplay og Robbie Williams á sínum snærum, mun hafa sagt forsvarrsmönnum Warner að tilboðið verði að vera ásættanlegt auk þess sem yfirvöld verði að samþykkja það áður en gengið verði frá kaupum. Breska dagblaðið Guardian segir að verði af samruna útgáfurisanna muni EMI og Warner flytja megnið af þeim hljómsveitum og tónlistarmönnum sem fyrirtækið gefur út til nýs og sjálfstæðs útgáfufélags. EMI sendi frá sér neikvæða afkomuviðvörun fyrir nokkru og gerir ráð fyrir verri afkomu en gert hafði verið ráð fyrir vegna minni sölu á tónlist undir merkjum fyrirtækisins. Sala á tónlistardiskum hefur dregist talsvert saman hjá báðum fyrirtækjunum og horfa þau til þess að með samruna geti þau eflt sölu á stafrænni tónlist, ekki síst á netinu. Mun sameinað félag hafa um 25 prósenta markaðshlutdeild á heimsvísu verði af gjörningnum. Ekkert liggur fyrir um tilboðið enn sem komið er. Breska ríkisútvarpið hefur eftir greinendum að vel geti farið að það hljóði upp á 260 pens á hlut, sem er um 18,5 pensum yfir lokagengi EMI í gær.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira