Goodbye, ástkæra … 24. september 2007 05:30 Sú var tíð að hægt var að sjá af holdafari fólks staðsetningu þess í metorðastiga þjóðfélagsins. Aðeins kaupmenn, prófastar og sýslumenn höfðu efni á að koma sér upp ístru, sem var stöðutákn þeirra tíma. Snotur ístra jafngilti 50 milljóna sportbíl í nútímanum en knésíð vömb var á við einkaþotu. ÞETTA ókeypis fitusog sem alþýðan bjó við hafði þann kost með sér að íslenskrar konur voru í kjörþyngd sýningarstúlkna frá landnámstíð fram á miðja tuttugustu öld. Þá uppgötvuðu auðmennirnir loksins að til væri fjölbreyttari afþreying en að safna ístru. Sjóndeildarhringur yfirstéttarinnar víkkaði til muna í góðærinu mikla sem var fyrst og fremst Adolf Hitler að þakka og stundum er kennt við síðari heimsstyrjöld. Í HARÐINDUM fyrri alda varð yfirstéttin að notast við danska mynt, því að íslenskir peningar voru auðvitað öngvir til, þar til í stríðinu. Þá komu dollarar og pund í stað hinnar dönsku myntar. Upp á grín var „álnum vaðmáls" breytt í íslenskar krónur. Sá gjaldmiðill vakti hlátur í fjármálastofnunum veraldar og var eingöngu notaður innanlands á svörtum markaði þar sem alþýðunni voru seldir dollarar á uppsprengdu verði meðan betra fólk fékk þá í bönkum á sanngjörnum prís. Þetta var áður en mönnum hafði hugkvæmst sú hagræðing sem fólst í því að afhenda yfirstéttinni bankana á einu bretti. EINS OG hinn sauðþrái íslenski almúgi hefur löngum haldið fram eru peningar ekki það sem máli skiptir í lífinu heldur þau forréttindi að geta hugsað, talað og skrifað á tungu feðra sinna. Í Noregi til forna var töluð íslenska. Þetta tungumál tóku landnámsmennirnir með sér að heiman og kölluðu „ástkæra ylhýra málið" og notuðu til að semja skemmtiefni fyrir svonefndar kvöldvökur í moldarkofum sem þéttaðir voru með mykju. NÚ ætlar yfirstéttin að taka upp ensku sem þjóðtungu við fyrsta hentugleika enda er öllum betri mönnum að verða ljóst að ekkert er upp úr íslenskunni að hafa. Þó verður fyrst um sinn heimilt að blóta á íslensku á laun þar sem vottum verður ekki við komið. Goodbye, ástkæra, ylhýra … Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þráinn Bertelsson Mest lesið Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson Skoðun Hvert í fjandanum erum við eiginlega komin sem samfélag? Steindór Þórarinsson Skoðun Hvað viltu verða þegar þú verður stór? Jónína Lovísa Kristjánsdóttir Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal Skoðun Vafasama Viðreisn Júlíus Valsson Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun Þú átt nóg og þú ert nóg Ragnhildur Katla Jónsdóttir Skoðun Hagræðing fyrir hvern? Stefán Pettersson Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal Skoðun
Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun
Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun