Fastir pennar

Konur í jakkafötum, gay kóngur, smalað á Spáni, spásagnir

Ég hef lengi haldið því fram að Vihjálmur bretaprins verði fyrsti gay kóngur á Englandi. Ég varð pínu tvístígandi meðan á sambandi hans við Kate Middleton stóð, en nú hefur hann slitið því. Þetta væri mjög í anda móður hans - sem var undir lokin orðin einhvers konar verndardýrlingur samkyhneigðra. Þegar Vilhjálmur kemur úr skápnum verður mikill fögnuður og vonandi gengur hann að eiga einhvern fallegan prins.

Tek samt fram að ég hef ekki hugmynd um hver kynhneigð Vilhjálms er, gæti reyndar ekki staðið meira á sama, en þetta er bara svo falleg hugmynd. 

--- --- ---

Meira alvörulaust hjal.

Getur einhver skýrt út hvers vegna Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og líka Guðfinna Bjarnadóttir voru í jakkafötum á landsfundi Sjálfstæðisflokksins? Þær tóku sér stöðu á sviði Laugardalshallarinnar innan um karlana í forystu flokksins og smellpössuðu svoleiðis í hópinn. Álengdar stóðu svo konurnar í flokknum, Arnbjörg Sveinsdóttir og Drífa Hjartardóttir, klæddar venjulegum kjólum og virkuðu voða gamaldags.

Annars minnir þetta á gamlan brandara sem ég held sé kominn frá gamla Spilverkinu/Stuðmönnum:

"Geir Hallgrímsson er ekki í jakkafötum, hann er í buxnadragt!"

--- --- ---

Suður í Torrevieja á Spáni er mikill fjöldi íslenskra eftirlaunaþega. Svo er náttúrlega fjölmenni á Kanarí líka. Þetta er hópur sem flokkarnir eru að reyna að bera sig eftir. Sjálfstæðisflokkurinn mun hafa skipulagt rútuferð með Íslendinga til ræðismanns í Benidorm eftir helgina og er talið að verði fjölmennt í rútunni.

Samfylkingin er líka að reyna að ná fólki af þessum slóðum saman í rútu, en hefur hins vegar átt við þann vanda að stríða að helst enginn vill reka erindi flokksins þarna suðurfrá. Kannski verður Ingibjörg Sólrún bara að leita til átrúnaðargoðs síns Zapatero, forsætisráðherra Spánar?

--- --- ---

Greiningardeild Glitnisbanka spáði því um daginn að hlutabréfamarkaðurinn á Íslandi hækki um 37 prósent á þessu ári. Ekki 36 eða 38 heldur nákvæmlega 37. Nú vita allir sem þekkja til að engin leið er að spá um hækkanir á hlutabréfamarkaði. Það er hægt að greina einhverjar tilhneigingar, en að nefna ákveðna prósentutölu er bjánalegt. Glitnismenn vita að það yrði einskær tilviljun ef spá þeirra rætist. Maður getur eins fengið Ellýju Ármanns til að lesa í kaffibolla eða Gulla til að rýna í stjörnukort.

En auðvitað er tilgangurinn með þessu aðeins einn - að kjafta upp markaðinn.

--- --- ---

Ekki veit ég hvers vegna skoðanakannanir Blaðsins virka svona ofboðslega vitlausar? Er einhver sem getur skýrt út fyrir mér hvaða skekkja er í þeim?



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×