Fastir pennar

Grunnnet, gamaldags skipulag, kosningablogg, Ebbi Sig

Míla heitir fyrirtæki sem hefur verið stofnað um rekstur grunnets Símans. Hefði kannski verið nær að láta það heita Kílómeter - mílur eru okkur Íslendingum framandi. Þetta er hið sama grunnet og ómögulegt var að skilja frá Símanum þegar hann var seldur. Maður skyldi varast að trúa öllu sem sagt er í pólitíkinni.

Aðskilnaðurinn er náttúrlega klassísk viðskiptabrella til að láta afkomutölur Símans - dýrasta símafyrirtækis í heimi - líta betur út. Kaupendur fyrirtækisins töldu sig hafa vilyrði fyrir því að Orkuveita Reykjavíkur keypti grunnnetið - en sú von gufaði upp þegar Guðlaugur Þór Þórðarson tók við stjórnarformennsku í Orkuveitunni. Því sitja þeir uppi með þessa starfsemi sem fylgja kvaðir um að halda uppi fjarskiptaþjónustu um allt land. En einokunin er sú sama og áður - við höfum fundið fyrir því hér á Stöð 2 að taxtarnir eru núorðið svo háir svo háir að við getum varla látið okkur dreyma um að hafa mann í mynd frá Akureyri.

--- --- ---

Er ekki framtíðarsýn hinnar nýju borgarstjórnar frekar gamaldags? Stóraukin byggð í sérbýli - og það alla leið upp við Úlfarsfell? Man ég vitlaust eða lagði ekki Gísli Marteinn til að frekari framkvæmdir við Úlfarsfell yrðu blásnar af? Með þessu móti heldur byggðin heldur áfram að dreifast upp um fjöll og firnindi með tilheyrandi bílaumferð, mengun og óhagræði. Það er gamaldags. Og um Vatnsmýrina er engin svör að hafa.

Það er kraftur í Vilhjálmi Þ. og brosið er ekki farið af honum síðan í kosningunum. Ég hef annars verið þeirrar skoðunar að það skipti litlu hver stjórnar borginni. Þetta hefur mestanpart verið sama tóbakið og verður það áfram.

--- --- ---

Það er áberandi núna fyrir kosningarnar hversu mikið af bloggurum er að taka þátt í einhvers konar spuna - að koma einhverju á flot eða setja fram túlkun á atburðum sem er stjórnmálaflokkunum þóknanleg. Það þyrfti einhvern veginn að flokka þá sérstaklega sem eru að blogga í þágu flokkanna. Þá er auðveldara að ignorera þá.

--- --- ---

Nú er talað um að reisa styttu af Guðmundi jaka í Breiðholti. En hvað þá með Ebba Sig, gamla dagsbrúnarforingjann, sem var svo mikill sósíalisti að hann bjó í síðasta torfbænum í Reykjavík - af tómri verkalýðshugsjón að ég best veit. Var það ekki Ebbi sem samdi við Bjarna Ben um byggingu Breiðholtsins eftir að borgarstjórn Sjálfstæðisflokksins hafði staðið fyrir því áratugum saman að helst enginn fengi húsnæði nema hann væri í Flokknum?

Það væri kannski hægt að hafa þá saman í styttu - svona eins og Marx og Engels í sósíalistaríkjunum.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×