Gengi Nissan keyrir niður á við 7. febrúar 2007 10:53 Carlos Ghosn, forstjóri Nissan. Mynd/AFP
Gengi hlutabréfa í japanska bílaframleiðandanum Nissan tók snarpa dýfu og lækkaði um 8,3 prósent í dag eftir að fyrirtækið sendi frá neikvæða afkomuviðvörun vegna yfirvofandi samdráttar á nýjum bílum undir merkjum félagsins. Ef af verður er þetta fyrsti samdrátturinn síðan Carlos Ghosn tók við forstjórastóli hjá Nissan um mitt ár 1999. Nissan sendi frá sér afkomuviðvörunina á föstudag í síðustu viku en þar kemur fram að þriggja prósenta samdráttur í sölu á nýjum bílum hafi orðið til þess að hagnaður fyrirtækisins hafi dregist saman um 23 prósent á síðasta ársfjórðungi. Helsti samdráttur er á bandaríska markaðnum, að því er segir í afkomuviðvöruninni. Afkoma Nissan mun ekki vera verri síðan Ghosn tók við forstjórastólnum en þá rambaði fyrirtækið á barmi gjaldþrots. Ghosn, sem sömuleiðis stýrir franska bílaframleiðandanum Renault, hefur lýst yfir vonbrigðum með niðurstöðuna og hefur í hyggju að leggja fram þriggja ára áætlun um rekstur fyrirtækisins í apríl.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Fleiri fréttir „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Norskir fjölmiðlar í hart við Meta EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Skoða að sameina Tesla og SpaceX Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Sýndu fljúgandi Roadster Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Sjá meira