Fyrstu Rússarnir komnir í leitirnar? 17. janúar 2007 10:30 Unnið við uppgröft. Markaðurinn/AFP
Fornleifafræðingar frá Bandaríkjunum og Rússlandi hafa fundið elstu vísbendingar um veru manna í Evrópu í Rússlandi. Mannvistarleifarnar, sem eru frá steinöld og talið er að séu um 45 þúsund ára gamlar, fundust við bæinn Kostenki um fjögur hundruð kílómetrum suður af Moskvu. Undrun sætir hversu austarlega í álfunni mannvistarleifarnar fundust. Á meðal þess sem fannst voru útskorin fílabein og gildrur, sem virðast hafa verið notaðar til að fanga lítil dýr á borð við héra og kanínur. Fundurinn þykir sýna að fyrstu íbúar Evrópu hafi komið frá Afríku fyrir um 42 þúsund til 45 þúsund árum, sem er um fimm þúsund árum fyrr en fram til þessa hefur verið talið. Ekki liggur fyrir um ástæðu þess að frummennirnir yfirgáfu Afríku og fóru til kaldari staðar þar sem loftið var þurrara en suðurfrá. Líkur virðast benda til að mennirnir sem fóru austur eftir hafi ekki verið af ætt Neanderdalsmanna, sem dreifðu úr sér í Evrópu um svipað leyti. Megi því gera ráð fyrir að Neanderdalsmenn hafi verið í minnihluta eða alls ekki þar sem nú er Rússland og því hafi þessi tiltekni hópur frummanna ákveðið að byggja sér dvalarstað þar þrátt fyrir að hafa ekki verið búnir til dvalar í köldu landi.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira