Ekki vitað hvort olíutankar NATO séu nýtanlegir 19. október 2007 11:21
Fjármálaráðherra hefur lagt fram svör við fyrirspurn Árna Þórs Sigurðssonar, þingmanns VG, um sölu fyrrum NATO-eigna í Hvalfirði. Í svörunum kemur m.a. fram að seljandi hefur hvorki látið kanna hvort umræddar eignir uppfylla skilyrði hlutaðeigandi stjórnvalda um geymslu á olíu né hvort leyfi fæst til að geyma olíu eða önnur mengandi efni í umræddum geymum. Umræddar eignir ríkisins í Hvalfirði verða seldar í því ástandi sem þær eru í við afhendingu til kaupanda. Þá kemur einnig fram að eignirnar eru ekki skráðar í Landskrá fasteigna enda voru fasteignir á fyrrum varnarsvæðum undanþegnar slíkri skráningu. Stofnskjal hefur verið gefið út fyrir umrædda lóð og liggur það hjá byggingarfulltrúa Hvalfjarðarsveitar til afgreiðslu. Hvað hugsanlega mengun frá olíutönkunum varðar segir í svari fjármálaráðherra að Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja hafi upplýst að því hafi á sínum tíma verið gert viðvart um að lekið hafi úr hálfniðurgröfnum olíutanki á svæðinu fyrir nokkrum árum. Sýni voru tekin úr grunnvatni árið 2002 og greindist ekkert óeðlilegt í þeim. Það er afstaða Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja að jarðvegs- og grunnvatnsmengun sé minniháttar. Heilbrigðiseftirlitið telur að það muni ekki á neinn hátt hamla nýtingu svæðisins, hvorki hvað varðar mannvirkjagerð í framtíðinni né nýtingu svæðisins til útivistar
Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Blákaldur veruleiki blasir við Helgu Þórisdóttur Innlent „Við viljum vera í partíi þar til búið er að gubba á gólfið hjá okkur“ Innlent Ríkisstjórnarsamstarfi lokið nái frumvarpið ekki í gegn Innlent Kolbeinn Sigþórsson sýknaður Innlent Arnar Þór ýjar að stofnun nýs stjórnmálaflokks Innlent Netanyahu fastur milli steins og sleggju Erlent TikTok myndbönd Höllu T sem náðu til unga fólksins Innlent Áróður Kremlar teygir anga sína til Íslands Innlent Vítisvist á Unglingaheimili ríkisins Innlent Harmar atvik þar sem konu var sagt að hún væri búin að kjósa Innlent Fleiri fréttir Tvær herþotur og 120 liðsmenn NATÓ komin til landsins Segir Kolbein hafa veitt liðsinni eftir fremsta megni Vegum lokað vegna veðurs Kolbeinn Sigþórsson sýknaður TikTok myndbönd Höllu T sem náðu til unga fólksins Telja kjósendur Höllu og Katrínar hafa kosið taktískt Brýnt að breyta fyrirkomulagi forsetakjörs Fylgjast grannt með nýrri sprungu innan varnargarðanna Ríkisstjórnarsamstarfi lokið nái frumvarpið ekki í gegn Tekist á um útlendingamálin og brýnt að breyta fyrirkomulagi forsetakjörs Hagsmunir barna ekki „tromp spil“ og niðurstaða umboðsmanns ótæk Von á bráðabirgðaniðurstöðu úr krufningu í þessari viku Skeiða- og Gnúpverjahreppur enn Skeiða- og Gnúpverjahreppur „Við viljum vera í partíi þar til búið er að gubba á gólfið hjá okkur“ Áróður Kremlar teygir anga sína til Íslands Fundi aflýst í allsherjar- og menntamálanefnd Blákaldur veruleiki blasir við Helgu Þórisdóttur Sjö af hverjum tíu Íslendingum í yfirþyngd eða offitu Vilja samstarf við Norðurlöndin vegna fólks sem vill ekki fara Vítisvist á Unglingaheimili ríkisins Fylgjast grannt með hraunflæðinu Arnar Þór ýjar að stofnun nýs stjórnmálaflokks Selenskí óskar Höllu Tómasdóttur til hamingju Harmar atvik þar sem konu var sagt að hún væri búin að kjósa Notkun Íslendinga á ADHD-lyfjum þrefaldaðist á tíu árum Fínt að það séu ekki bara „kallaforsetar“ Seinkun á tölum ekki að ástæðulausu Nýr forseti, kjörsókn sú besta í 28 ár og mat kjósenda Óskar Höllu til hamingju: „Þú verður góður forseti“ Svona var ávarp nýkjörinnar Höllu Tómasdóttur Sjá meira