Bakþankar

Eru ekki allir í stuði?

Í síðustu viku fór ég með tveggja ára gamlan son minn til Kaupmannahafnar til að sýna honum Tívolíið og dýragarðinn. Þegar ég velti framtíðinni fyrir mér sé ég alltaf fyrir mér hvað við eigum eftir að ferðast mikið saman. Ég myndi til að mynda bjóða honum á Hróarskelduhátíðina þegar hann fermdist. Þangað fór ég fyrir sjö árum og sá meðal annars Travis, Kent, Willy Nelson og Moloko.



Ein uppáhaldshljómsveitin mín, Pearl Jam, var líka mætt en hún hafði aðeins leikið nokkur lög þegar Eddie Vedder kraup á sviðið. „Han gråter" sögðu Svíarnir fyrir aftan mig. Tónleikarnir voru blásnir af og það var ekki fyrr en ég kveikti á sjónvarpinu næsta dag að ég áttaði mig á því hvað hafði gerst. Átta ungir menn höfðu troðist til bana undir mannfjöldanum. Augnblýanturinn lak í svörtum taumum niður andlit Gotharanna þegar ég kom aftur inn á tónleikasvæðið. Gleðin var búin og þótt ég hafi fengið smjörþefinn af stemningunni sem ríkir á hátíðinni finnst mér ég verða að fara aftur. Og þá býð ég sko syni mínum með.



Nú hefur hann aftur á móti áhuga á allt öðru en rokki. Hann setti á sig sjóræningjahatt og tók sér bæði sverð í hönd og danskan fána, sem honum hafði tekist að pissa á fyrr um daginn, og fór þannig útlítandi í Tívolíið. Saman snerumst við mæðginin um í hringekju og klöppuðum í takt við leik lúðrasveitar skipuðum taktföstum drengjum. Þegar við komum aftur inn á hótel stóðu niðurrignd norsk ungmenni forug upp á lær í móttökunni. Þau vildu herbergi og sem betur fer voru þau til því annars hefði ég staflað þessum þrándheimsku krökkum inni hjá okkur syni mínum.



Meðan krakkarnir biðu eftir lyklunum heyrði ég þá ræða böndin sem þeir áttu í vændum. Ég heyrði nöfnin Arcade Fire og Arctic Monkies. Eða var það Arcade Monkeys og Arctic Fire? Það rann upp fyrir mér að ég var ekkert inn í þessari tónlist. Líklega yrði ég ekkert minna úti á þekju sumarið 2018. Ef ég færi á Hróarskeldu það árið myndi ég líklega bara snúast um sjálfa mig föst á fortíðartrippi í leit að Pearl Jam, Kent og Travis. Willy Nelson verður líkast til kominn undir græna torfu. Sonur minn myndi skammast sín fyrir mig og þegar ég spyrði hann hvort við ættum ekki bara að skella okkur í hringekjuna í Tívolíinu, „þér fannst það nú einu sinni svo gaman", myndi hann endanlega stinga mig af.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×