Saga og þróun 23. september 2006 07:00 A.T. Still upphafsmaður höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferðar og John Upledger sem hefur þróað meðferðina á síðustu árum.
Höfuðbeina- og spjaldhryggsmefðerð hefur verið að þróast alla síðustu öld út frá vinnu og uppgötvunum þriggja lækna; A. T. Still, William Sutherland og Dr. John E. Upledger. A.T. Still (1828-1917) missti þrjú barna sinna þegar þau veiktust af heilahimnubólgu. Hann áleit þau hafa dáið af meðferðinni en ekki sjúkdómnum sjálfum. Hann hneigðist í átt að náttúrulækningum eftir þá erfiðu reynslu. Hann lagði mikla áherslu á að líkaminn væri ein eining eða heild og að uppbygging líkamans og starfsemi hans væru nátengd. Hann leit á líkamann sem kerfi með sjálflæknandi eiginleika, því minna sem gripið sé inn í starfsemina þeim mun betur gangi að læknast. Hann komst einnig að þeirri niðurstöðu að sum lyf væru hættuleg. Dr. John Upledger, prófessor í lífaflsfræði, leiddi teymi af líffræðingum, lífeðlisfræðingum og lífefnaverkfræðingum og þróaði CranioSacral-meðferðina á árunum 1975 til 1980, eftir mikla rannsóknarvinnu. Niðurstaða Dr. Upledgers var sú að árangursrík meðferðarvinna yrði að taka til allra mannlegra þátta, jafnt líkamlegra sem andlegra þátta. Maðurinn er ein heild og þannig beri að meðhöndla hann.
Mannlegi þátturinn Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Hinsegin ást í loftinu Lífið Fundu ástina á Domino's Lífið Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni Tónlist „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist Arnór Sig kominn á fast Lífið