Að hafa ekki taumhald á tungu sinni 5. apríl 2006 22:56 Það er gaman þegar stjórnmálamenn eru ógætnir í orðum, tala af sér, á tíma þegar pólitíkusar ástunda það að vera fjarskalega orðvarir, blaðra helst um ekki neitt, hafa ekki stórar skoðanir og móðga ekki neinn. Silvio Berlusconi er sjálfsagt fjarska varasamur maður, en hann hefur óneitanlega visst skemmtanagildi - á ferli sínum hefur honum tekist að móðga Finna (óætur matur - vita ekki hvað prosciutto er), múslima (óæðri menning), þýska evrópuþingmenn (fangabúðaverðir) og síðast Kínverja með glannalegum yfirlýsingum. Berlusconi sagði nýskeð að kínverskir kommúnistar hefðu notað börn í áburð. Sumir segja að Berlusconi sé trúður - en það er ábyggilega einföldun. Honum hefur altént tekist að verða ríkasti og valdamesti maður Ítalíu. Í kosningabaráttunni sem nú stendur yfir hefur hann heitið kynlífsbindindi, líkt sjálfum sér við Jesú Krist, en nú síðast sagði hann að þeir sem kysu vinstri flokkanna væru coglioni. Það er mjög dónalegt orð sem erfitt er að þýða á íslensku. Ótal sögur og skrítlur ganga um þennan litríka mann, sem eitt sinn var söngvari á skemmtiferðaskipi. Til dæmis þessi: "Tveir marsbúar koma til jarðarinnar sem er auð og tóm. Annar þeirra spyr: "Hvað gerðist hérna?" Hinn svarar: "Samningaviðræður við Talibanana gengu vel þangað til Berlusconi ákvað að segja brandarann um imaminn og nektardansmeyna." --- --- --- En það geta fleiri misst sig en Berlusconi. David Cameron, hinn nýji leiðtogi breska Íhaldsflokksins, var í útvarpsviðtali um daginn og var þá spurður um Sjálfstæðisflokkinn breska (Independence Party - skammstafað UKIP). Þetta er flokkur sem samanstendur að miklu leyti af gömlum íhaldsmönnum, var stofnaður af auðkýfingnum Sir Jimmy Goldsmith - helsta stefnumálið er megn óbeit á Evópusambandinu. Í viðtalinu kallaði Cameron liðsmenn flokksins "fruitcakes and loonies, closet racists mostly". Þetta eru nokkuð sterk orð - ég hef ekki fyrir því að þýða þau. Sjálfstæðisflokkurinn hefur hótað að fara í mál. En þá er þess líka að gæta að Sjálfstæðismenn hafa ekki vandað Cameron kveðjurnar. Þeir segja að hann sé linur í Evrópumálunum, hann sé í rauninni krati og slappari en Tony Blair í stríðinu gegn hryðjuverkum. Í einum skemmtilegum pistli úr herbúðum Sjálfstæðismanna var Cameron líkt við nútímalegan og smartan prest - já, svona eins og ef Hjörtur Magni færi í pólitík. Það var ekki meint sem hrós. --- --- --- En líklega er best að gæta orða sinna. Philip Meeson, eiganda lágfargjaldaflugfélags og einum ríkasta manni Bretlands, var nóg boðið vegna vinnudeilna í Frakklandi. Flugvélar frá honum lenda á flugvellinum í Chambery. Þar höfðu stúdentar skipulagt setuverkfall. Í reiði sinni skrifaði Meeson grein á vefsíðu flugfélagsins þar sem stóð: "Jet2.com condemns French strike action and calls for lazy frogs to get back to work!"Það voru einkum orðin lazy frogs sem fóru fyrir brjóstið á Frökkum. Þeir heimta náttúrlega afsökunarbeiðni. Samt er ekki hægt að verjast þeirri tilhugsun að Meeson hafi nokkuð til síns máls - það hafa hinir kjaftforu stundum - þegar hann segir: "What exactly are you striking about? Or just in case you don't understand that, pouvez-vous nous expliquer pourquoi exactement êtes-vous en grève?" (Getið þið skýrt nákvæmlega út af hverju þið eruð í verkfalli?) Svar eins talsmanns verkfallsmanna var líka nokkuð gott: "Ef menn eru ekki sammála ríkisstjórninni, þykir það næg ástæða til verkfalla í Frakklandi." Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Pistlar Silfur Egils Skoðanir Mest lesið Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir Skoðun
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun