Aftur á þjóðvegi eitt 27. september 2006 00:01 Mála sannast er að nú eru þáttaskil í varnar- og öryggismálum landsins. Varnarlið Bandarkjanna er farið af vettvangi. Varnarsamningurinn stendur þar á móti með nýjum pólitískum markmiðsyfirlýsingum og viðfangsefnum í samræmi við breyttar aðstæður. Samhliða hefur verið gengið frá samkomulagi um viðskilnað Varnarliðsins. Í því samhengi hafa tvö atriði mikilvægi umfram önnur. Annað lýtur að því að tekið verði á hugsanlegri mengun á varnarsvæðinu samkvæmt þeim kröfum sem almennt eru gerðar í þeim efnum. Hitt málið snýst um að koma eignum Varnarliðsins í not. Þar þarf fyrst og fremst að því að hyggja að ákvarðanir verði teknar á markaðsforsendum en ekki á grundvelli pólitískrar gæsku einnar saman. Skýr varnarstefna til að tryggja langtíma öryggishagsmuni þjóðarinnar er eftir sem áður kjarni þessa máls. Varnarsamningurinn við Bandaríkin gegnir enn lykilhlutverki í því efni. Það hefði verið óábyrgt æði að segja honum upp. Varðandi þessi mál öll hefur það mikið gildi að tekist hefur samkomulag um formlegan farveg til þess að þróa pólitískt og tæknilegt samráð um framkvæmd varnarsamningsins. Ríkjandi aðstæður sýnast hins vegar ekki kalla á meiri varnarviðbúnað en þær viðbragðsáætlanir sem nú er gert ráð fyrir. Atlantshafsbandalagið er að styrkleika ekki svipur hjá sjón miðað við það sem áður var. En hvað sem því líður er aðildin að því með gagnkvæmum varnarskuldbindingum einnig nauðsynleg og reyndar óhjákvæmilegur þáttur í heildarmyndinni. Innan vébanda Atlantshafsbandalagsins er aukheldur rétt að þróa, eftir því sem föng eru á, samvinnu einkum með þeim þjóðum sem mestra hagsmuna eiga að gæta á Norður-Atlantshafinu. Í meira en hálfa öld höfum við borið gæfu til að fylgja yfirvegaðri og raunsærri stefnu í varnar- og öryggismálum. Þar hafa ríkjandi aðstæður og langtímahagsmunir ráðið skynsamlegri vegferð. Segja má að aðeins tvisvar á öllum þessum tíma hafi vinstri ríkisstjórnir farið með varnarmálin í hreinar vegvillur. En ákvarðanir þeirra um uppsögn varnarsamningsins fóru út um þúfur. Og loks fór næstliðin borgaraleg ríkisstjórn út á hjáleið í þessu viðliti með hótun um uppsögn ef ekki yrði orðið við fullkomlega óraunhæfum og órökstuddum kröfum. Þessar tvær vegvillur og eina hjáleiðartilraun rýrðu vissulega trúverðugleika okkar á þessu sviði, en aðeins um skamman tíma. Við erum nú aftur á þjóðvegi eitt í varnarmálum. Samkomulagið sem gert hefur verið við Bandaríkin bendir ótvírætt til að raunsæ og trúverðug langtímasjónarmið hafi ráðið för. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðanir Þorsteinn Pálsson Mest lesið Lygin um að á Íslandi sé nauðgunarmenning Huginn Þór Grétarsson Skoðun Hjúkrunarfræðingurinn sem skuldar meira, græðir helling og vill kíkja í pakka Haraldur Ólafsson Skoðun Í Evrópusambandinu eru réttindi verkafólks á forsendum markaðarins Ágúst Valves Jóhannesson Skoðun Þjóðaröryggishætta Nýja Landspítalans Sigurður Sigurðsson Skoðun Betri svefn – Betra líf Erla Björnsdóttir Skoðun Reikniskekkja Viðreisnar í Kópavogi Orri Vignir Hlöðversson Skoðun Sameign þjóðarinnar — eða stærsta tilfærsla auðlinda í sögu Íslands? Vilhelm Jónsson Skoðun Ummæli Sönnu kalla á svör - hver er „freki karlinn“? Bergljót Gunnlaugsdóttir,Birna Gunnlaugsdóttir,Geirdís H. Kristjánsdóttir,Hallfríður Þórarinsdóttir,Júnía Líf Maríuerla Sigurjónsdóttir,Rósa Guðný Arnardóttir,Sigrún E. Unnsteinsdóttir Skoðun Orkudrottningar Orkueyjunnar Ásta Olga Magnúsdóttir Skoðun Enn og aftur, Alma Möller Arnar Helgi Lárusson Skoðun
Hjúkrunarfræðingurinn sem skuldar meira, græðir helling og vill kíkja í pakka Haraldur Ólafsson Skoðun
Í Evrópusambandinu eru réttindi verkafólks á forsendum markaðarins Ágúst Valves Jóhannesson Skoðun
Ummæli Sönnu kalla á svör - hver er „freki karlinn“? Bergljót Gunnlaugsdóttir,Birna Gunnlaugsdóttir,Geirdís H. Kristjánsdóttir,Hallfríður Þórarinsdóttir,Júnía Líf Maríuerla Sigurjónsdóttir,Rósa Guðný Arnardóttir,Sigrún E. Unnsteinsdóttir Skoðun
Hjúkrunarfræðingurinn sem skuldar meira, græðir helling og vill kíkja í pakka Haraldur Ólafsson Skoðun
Í Evrópusambandinu eru réttindi verkafólks á forsendum markaðarins Ágúst Valves Jóhannesson Skoðun
Ummæli Sönnu kalla á svör - hver er „freki karlinn“? Bergljót Gunnlaugsdóttir,Birna Gunnlaugsdóttir,Geirdís H. Kristjánsdóttir,Hallfríður Þórarinsdóttir,Júnía Líf Maríuerla Sigurjónsdóttir,Rósa Guðný Arnardóttir,Sigrún E. Unnsteinsdóttir Skoðun