Þýska kauphöllin í Frankfurt, Deutsche Börse, er sögð íhuga að gera yfirtökutilboð í Kauphöll Spánar, Bolsa Y Mercados Espanoles. Ekki er nákvæmlega tilgreint hversu hátt tilboð Deutsche Börse er að öðru leyti en því að það hljóðar upp á 33 evrur á hlut.
Stjórn þýsku kauphallarinnar neitar hins vegar að tjá sig um fréttir þessa efnis.