Undir aga alþjóðaviðskipta 23. júlí 2006 00:01 Fjármálafyrirtækið Merrill Lynch birti nýja skýrsu þar sem lagt er mat á áhættu af skuldabréfum íslensku bankanna. Merrill Lynch birti afar neikvæða skýrslu um íslensku bankana fyrr á árinu sem átti sinn þátt í að ýtta af stað falli á íslensku krónunni. Tónninn í nýrri skýrslu getur seint talist jákvæður, enda ekki margt breyst frá þeirri síðustu. Hann er þó ögn jákvæðari en áður. Segja má að ákveðin vatnaskil hafi orðið í umræðu um íslenskt efnahagslíf í kjölfar þess að Viðskiptaráð lét vinna skýrslu um íslenskt efnahagslíf og hættu á fjármálakreppu. Frederic Mishkin sem nú er orðinn einn Seðlabankastjóra í Bandaríkjunum og Tryggvi Þór Herbertsson, hagfræðiprófessor, komust þar að þeirri niðurstöðu að ekki væri mikil hætta á fjármálakreppu á Íslandi. Undirstöður fjármálkerfisins og sveigjanleiki hagkerfisins, ásamt með regluverki og eftirlitsstofnunum tryggðu að sú hagsveifla sem veldur vandræðum nú ætti ekki að verða til mikils skaða. Hitt er svo annað mál að yfir átta prósent verðbólga samhliða stýrivöxtum yfir þrettán prósentum mun seint teljast merki þess að hagstjórn sé með blóma. Skýrslur eins og skýrsla Merill Lynch munu verða viðvarandi veruleiki fyrir íslenskt efnahagslíf og fjármálafyrirtæki. Við því er ekkert að segja og á meðan ekki ríkir meiri stöðugleiki í íslensku efnahagskerfi og raun ber vitni, þá getum við ekki búist við öðru en nokkurri gagnrýni á alþjóðamörkuðum. Sumt af þessari gagnrýni er þess eðlis að við eigum að taka það til gaumgæfilegrar skoðunar. Annað er byggt á fordómum og litlum vilja til að skilja samhengi íslensks efnahagsveruleika, eins og gengur. Það er engin ástæða til að fara á taugum yfir þessari umræðu. Hún er hluti af þeim veruleika að við erum orðin fullgildur þátttakandi í heimi alþjóðavðskipta. Þessi umræða mun einnig verða til þess að aginn kemur innan frá í viðskiptalífinu. Þar verða einfaldlega ríkari hagsmunir af því að stjórnarhættir fyrirtækja og umgengni á markaði sé í lagi, heldur en sá skammtímaávinningur sem hlýst af broti og góðum viðskiptaháttum. Fyrir viðskiptalífið og almenning í landinu er best að viðskiptalífið móti sem mest sínar eigin reglur. Full ástæða er því til að taka undir mið Viðskiptaráði Íslands í þeim efnum. Gott samfélag gengur almennt út frá því að fólk sé heiðarlegt og tortryggir ekki þegna sína af litlu tilefni. Það kann að kosta að einhverjir sem verðskulda straff sleppi. Það er hins vegar mun betra en að binda á klafa heilbrigt afl með reglufargani. Almennt séð hefur íslenskt viðskiptalíf verið í mikilli framþróun. Erlend gagnrýni er hluti af þeim breytingum sem orðið hafa og í viðskiptalífinu hefur þegar verið brugðist við henni, jafnvel á sviðum þar sem ekki hefur verið undir hana tekið. Þar hefur ráðið sú hugsun sem er skynsamleg, að hafa vaðið fyrir neðan sig. kvót Það er engin ástæða til að fara á taugum yfir þessari umræðu. Hún er hluti af þeim veruleika að við erum orðin fullgildur þátttakandi í heimi alþjóðavðskipta. Þessi umræða mun einni verða til þess að aginn kemur innan frá í viðskiptalífinu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hafliði Helgason Skoðanir Mest lesið Hvað er títt af Seðlabankastjóra og unnustu hans? Einar Steingrímsson Skoðun Hálf sagan um fjármagnstekjuskatt Björn Brynjúlfur Björnsson Skoðun Halldór 10.10.2026 Halldór Afkomuöryggi er forsenda listsköpunar Jóna Hlíf Halldórsdóttir Skoðun Hvað fær Ísland fyrir Seyðisfjörð? Ólafur Margeirsson Skoðun Sjáðu þig - taktu eftir breytingum Birgitta Lind Vilhjálmsdóttir Skoðun Það gengur svo vel hjá okkur! Kristján Freyr Halldórsson Skoðun Ríkið stal þremur árum frá ungum föður og syni hans Íris Erlingsdóttir Skoðun Glassúrfólkið Ólöf Skaftadóttir,Kristín Gunnarsdóttir,Hjörvar Hafliðason,Birkir Karl Sigurðsson,Leifur Þorsteinsson,Þórarinn Hjartarson,Gísli Freyr Valdórsson,Gurrý Jónsdóttir,Lína Birgitta,Sólrún Diego Skoðun Geðheilbrigði - sameiginlegt verkefni okkar allra Snæfríður Jóhannesdóttir,Þórey Rósa Einarsdóttir Skoðun
Glassúrfólkið Ólöf Skaftadóttir,Kristín Gunnarsdóttir,Hjörvar Hafliðason,Birkir Karl Sigurðsson,Leifur Þorsteinsson,Þórarinn Hjartarson,Gísli Freyr Valdórsson,Gurrý Jónsdóttir,Lína Birgitta,Sólrún Diego Skoðun
Geðheilbrigði - sameiginlegt verkefni okkar allra Snæfríður Jóhannesdóttir,Þórey Rósa Einarsdóttir Skoðun
Glassúrfólkið Ólöf Skaftadóttir,Kristín Gunnarsdóttir,Hjörvar Hafliðason,Birkir Karl Sigurðsson,Leifur Þorsteinsson,Þórarinn Hjartarson,Gísli Freyr Valdórsson,Gurrý Jónsdóttir,Lína Birgitta,Sólrún Diego Skoðun
Geðheilbrigði - sameiginlegt verkefni okkar allra Snæfríður Jóhannesdóttir,Þórey Rósa Einarsdóttir Skoðun