Fastir pennar

Konurnar í "Karlabæ"

Þrátt fyrir að sjö konur byðu sig fram í prófkjöri sjálf­­stæðismanna í Garðabæ á móti fimm körlum var eftirtekja kvennanna harla rýr, því þær eru ekki meðal fjögurra efstu í prófjörinu. Ein þeirra kvenna er þó sitjandi forseti bæjarstjórnar Garðabæjar. Úrslitin hljóta að hafa vakið forystumenn Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ til umhugsunar um framtíð og gengi flokksins í væntanlegum sveitarstjórnarkosningum í vor, ekki síst vegna þess að í síðustu kosningum var kona í efsta sæti listans, og það hefur væntanlega ráðið einhverju um að sjálfstæðismenn héldu meirihlutanum í stjórn bæjarfélagsins.

Þetta er reyndar ekki í fyrsta skipti sem konur verða illa úti í prófkjöri sjálfstæðismanna, því þess er skemmst að minnast að þær báru skarðan hlut frá borði í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík fyrir alþingiskosningarnar síðustu. Voru þó þar á meðal konur sem getið höfðu sér gott orð í stjórnmálabaráttu Sjálfstæðisflokksins á landsvísu, en þær áttu ekki upp á pallborðið hjá þeim sem tóku þátt í prófkjörinu. Reyndar hefur hlutur kvenna í þingflokki Sjálfstæðisflokksins batnað töluvert vegna breytinga sem urðu á þingliðinu með brotthvarfi Davíðs Oddssonar og að Gunnar Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, situr nú ekki á þingi.

Það er ár og dagur síðan sjálfstæðismenn í Garðabæ efndu síðast til prófkjörs til að velja fulltrúa á lista flokksins fyrir sveitarstjórnarkosningar, eða um 28 ár, en af einhverjum ástæðum hafa þeir talið heppilegt að efna til prófkjörs nú. Prófkjör eiga að bera vott um að lýðræðið sé í heiðri haft, en reynslan hefur nú sýnt að það eru einkum þeir sem hafa yfir að ráða vel smurðum kosningavélum sem fara þar með sigur af hólmi og svo óum­deildir foringjar innan stjórnmálaflokkanna. Af fréttum að dæma þá var mikið um smölun hjá sjálfstæðismönnum í Garðabæ á laugardag og fjölmargir skráðu sig í flokkinn.

Bæði formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna og forseti bæjarstjórnar hafa lýst miklum vonbrigðum með útkomu kvenna í prófkjörinu. Önnur þeirra sagði í viðtali við Frétta­blaðið í gær, að þarna væri um að ræða slys sem ætti ekki að gerast, og hin að útkoman væri áfall og konum hefði verið hafnað. Laufey Jóhannssdóttir, núverandi forseti bæjarstjórnar, sagði enn fremur að þetta [hefði] verið prófkjör sjálfstæðismanna í karlabæ.

Ekki er ólíklegt að úrslitin í prófkjörinu í Garðabæ um helgina hafi einhver áhrif á úrslit prófkjörs sjálfstæðismanna í Kópavogi sem fram fer um næstu helgi. Þar efast líklega enginn um úrslitin hvað varðar fyrsta sætið, en óneitanlega hljóta sjónir manna að beinast að skipan annarra sæta þar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×