Jól

Kóramót í miðborginni í kvöld

Í kvöld klukkan 20.00 munu tíu kórar safnast saman á Austurvelli og syngja jólalög. "Kórarnir er úr ýmsum áttum og hafa að undanförnu gengið um miðborgina og sungið, vegfarendum til ómældrar ánægju," segir Ólafur Þórðarson, sem stendur að uppákomunni. "Það er sjálfsagt einsdæmi að svo margir kórar komi saman úti við í miðbænum á þessum árstíma, en kórarnir munu syngja jólalög og jólasálma sem allir kunna og borgarbúar eru hvattir til að taka þátt í söngnum. Hefð hefur skapast fyrir því að kórar og sönghópar séu á ferð í miðbænum fyrir jól, en mig langaði að gera meira úr þessu," segir Ólafur. "Af hverju ekki að skapa líka hefð fyrir því að kórar safnist saman daginn fyrir Þorláksmessu og syngi saman? Ég vona að okkur takist að festa þetta í sessi og að sem flestir komi í miðbæinn og taki þátt." Verslanir í miðborginni eru opnar til klukkan 22.00 í kvöld og til klukkan 23.00 á Þorláksmessu, en þá verða meðal annars ýmis brassbönd á ferð um miðbæinn. Á aðfangadagsmorgun eru verslanir opnar til hádegis.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×