Kóramót í miðborginni í kvöld 22. desember 2004 00:01
Í kvöld klukkan 20.00 munu tíu kórar safnast saman á Austurvelli og syngja jólalög. "Kórarnir er úr ýmsum áttum og hafa að undanförnu gengið um miðborgina og sungið, vegfarendum til ómældrar ánægju," segir Ólafur Þórðarson, sem stendur að uppákomunni. "Það er sjálfsagt einsdæmi að svo margir kórar komi saman úti við í miðbænum á þessum árstíma, en kórarnir munu syngja jólalög og jólasálma sem allir kunna og borgarbúar eru hvattir til að taka þátt í söngnum. Hefð hefur skapast fyrir því að kórar og sönghópar séu á ferð í miðbænum fyrir jól, en mig langaði að gera meira úr þessu," segir Ólafur. "Af hverju ekki að skapa líka hefð fyrir því að kórar safnist saman daginn fyrir Þorláksmessu og syngi saman? Ég vona að okkur takist að festa þetta í sessi og að sem flestir komi í miðbæinn og taki þátt." Verslanir í miðborginni eru opnar til klukkan 22.00 í kvöld og til klukkan 23.00 á Þorláksmessu, en þá verða meðal annars ýmis brassbönd á ferð um miðbæinn. Á aðfangadagsmorgun eru verslanir opnar til hádegis.
Jól Mest lesið Gömul jólasveinanöfn Jól Jólasveinninn gefur gjafirnar Jól Mömmukökur bestar Jólin Sálmur 562 - Að jötu þinni Jól Svona gerirðu graflax Jól Ástarávísanir í pakkann Jól Jólastrætó skreyttur af leikskólabörnum Jólin Kærastinn gerði ekki eins og pabbi Jól Gekk ég yfir sjó og land Jól Jólakonfekt: Allir taka þátt Jólin