Staðreyndir fram í dagsljósið 13. desember 2004 00:01 Ef ríkisstjórninni er annt um álit sitt og trúverðugleika á hún að fara að tilmælum stjórnarandstöðunnar og leggja öll spil á borðið varðandi aðdraganda stuðningsyfirlýsingarinnar við innrásina í Írak í fyrravor. Á Alþingi situr Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra nú undir ásökunum um að vera tvísaga í frásögnum sínum um atburðarásina og við það verður ekki unað. Það þarf að skýra málið í smáatriðum fyrir Alþingi og þjóðinni. Sama dag og ráðist var inn í Írak, 20. mars 2003, bárust þær fréttir frá Washington, hafðar eftir blaðafulltrúa Hvíta hússins, að Ísland væri meðal þeirra ríkja sem lýst hefðu yfir stuðningi við innrásina. Þetta kom á óvart því ekkert hafði spurst út um að ríkisstjórnin hefði gert samþykkt í þessa veru né heldur að utanríkismálanefnd hefði verið kölluð saman til að ræða þessa ákvörðun eins og lög kveða á um þegar um "meiri háttar utanríkismál" er að ræða. Raunar hefði mátt vænta þveröfugrar afstöðu miðað við málflutning Halldórs Ásgrímssonar, þáverandi utanríkisráðherra, sem á Alþingi boðaði á þessum tíma friðsamlega lausn Íraksdeilunnar og lagði áherslu á að Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna væri samstíga í ákvörðun sinni. Þótt alþingismenn og fjölmiðlar hafi margsinnis borið fram fyrirspurnir um það með hvaða hætti ákvörðunin var tekin hafa ráðherrarnir Halldór Ásgrímsson og Davíð Oddsson, sem virðast lykilpersónur í málinu, vikið sér undan því að svara skýrt. Í Kastljósi Sjónvarpsins fyrir nokkrum dögum sagði Halldór Ásgrímsson að engin "formleg ákvörðun" um stuðning við innrásina hefði verið tekin af ríkisstjórninni. Í umræðum sem urðu á Alþingi í lok síðustu viku virtist ráðherrann vera orðinn tvísaga. Þá sagði hann að stuðningurinn við innrásina hefði verið ræddur á ríkisstjórnarfundi 18. mars 2003 og sendiráði Bandaríkjanna tilkynnt um stuðning Íslands við hernaðaraðgerðir í framhaldi af því. Felst ekki í þessum orðum að ríkisstjórnin hafi þá tekið ákvörðun um stuðning við innrásina? Var það kannski "óformleg ákvörðun"? Og hvað er "óformleg ákvörðun" þegar ríkisstjórn á í hlut? Þá kom fram í máli ráðherrans að utanríkismálanefnd hefði verið skýrt frá aðdraganda ákvörðunarinnar á fundi 21. mars, daginn eftir innrásina. Málflutningur forsætisráðherra vekur fleiri spurningar en hann svarar. Hvað var bókað í fundargerð ríkisstjórnarinnar um málið? Var málið þannig kynnt á ríkisstjórnarfundinum að öllum ráðherrunum væri ljóst að haft yrði samband við bandaríska sendiráðið og opinber stuðningsyfirlýsing gefin? Var einhver skoðanamunur innan ríkisstjórnarinnar? Og hvaða rök voru færð fram í málinu? Hvenær bárust tilmæli um þetta frá Bandaríkjastjórn og hvernig voru þau sett fram? Skjöl og gögn um öll þessi atriði þarf að opinbera. Nauðsynlegt er einnig að aflétta þeim trúnaði sem ríkir um fundinn í utanríkismálanefnd Alþingis 21. mars. Vel má vera að mörgum spurningum málsins sé svarað í fundargerðinni en þau svör - og önnur sem þar er ekki að finna - þurfa að koma fram opinberlega. Af hverju ætti ríkisstjórnin að hafna því ef hún hefur ekkert að fela? Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fastir pennar Guðmundur Magnússon Mest lesið Er sanngjarnt að almenningssamgöngur á landsbyggðinni séu skertar? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Hvers vegna ég skipti um skoðun á aðild Íslands að Evrópusambandinu Gunnar Ármannsson Skoðun Spyrjið ykkur: Fyrir hvern vinnur íslenska krónan? Þórður Snær Júlíusson Skoðun Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðarefni Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason Skoðun Ekki ert þú nú mikill maður Kristján Loftsson Kristján Logason Skoðun Ekki sjá eftir atkvæðinu þínu! Arnar Steinn Þórarinsson Skoðun Skiptir stærðin máli? Páll Rafnar Þorsteinsson Skoðun Þjóðarvarnarráðið hefur verið kallað saman af minna tilefni! Davíð Bergmann Skoðun Orðspor og ímynd bíður hnekki Haukur Hinriksson Skoðun Í kjörklefanum erum við ein Jón Steindór Valdimarsson Skoðun
Er sanngjarnt að almenningssamgöngur á landsbyggðinni séu skertar? Halla Hrund Logadóttir Skoðun
Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðarefni Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason Skoðun
Er sanngjarnt að almenningssamgöngur á landsbyggðinni séu skertar? Halla Hrund Logadóttir Skoðun
Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðarefni Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason Skoðun