Viðvörun í anda foringjastjórnmála 3. október 2004 00:01 Sé forystumönnum Framsóknarflokksins annt um ímynd flokksins fóru þeir óskynsamlega að ráði sínu þegar þeir útilokuðu Kristin H. Gunnarsson alþingismann frá setu í nefndum Alþingis á vegum flokksins. Ákvörðunin hefur á sér svip skoðanakúgunar og einhvers konar áminningar eða viðvörunar til annarra þingmanna og trúnaðarmanna flokksins um að þeir skuli gæta tungu sinnar eða hafa verra af. Framsóknarflokkurinn er að fá á sig æ sterkari svip flokks sem þolir ekki opinberar umræður og skoðanaágreining í sínum röðum. Þegar athygli var vakin á því í desember í fyrra að einn af nýliðununum í þingflokki framsóknarmanna, Dagný Jónsdóttir, væri ekki sjálfri sér samkvæm í afstöðu til námslána á þingi annars vegar og fyrir kosningar hins vegar, þegar hún bar að afla sér fylgis meðal kjósenda úr röðum háskólastúdenta, svaraði hún fyrir sig á heimasíðu sinni á netinu með þeim orðum að á þingi væru "tvö lið" og bætti við: "eins og staðan er núna er ég í stjórnarliðinu. Í þessu felst enginn hroki, bara staðreynd og maður fylgir sínu liði." Um margt eru þessi orð táknræn fyrir þann hugsunarhátt sem smám saman hefur verið að festast í sessi innan stjórnmálaflokkanna, ekki síst núverandi stjórnarflokka, og á Alþingi. Það er blásið á 48. grein stjórnarskrárinnar sem segir skýrum stöfum að alþingismenn skuli eingöngu bundnir við sannfæringu sína. Fylgi menn ekki "liðinu" í einu og öllu eru þeir taldir óalandi og óferjandi. Dapurlegt er að sjá að unga kynslóðin á Alþingi fylgir hinum eldri eins og í blindni að þessu leyti. Kristinn H. Gunnarsson reitti forystumenn Framsóknarflokksins einkum til reiði með afstöðu sinni í tveimur málum. Annars vegar með ádeilu sinni á þátttöku Íslands í Íraksstríðinu þar sem hann benti réttilega á að allar hefðir um samráð við utanríkismálanefnd Alþingis hefðu verið brotnar þegar ákvörðun var tekin um aðild Íslands að hernaðinum. Hins vegar með afstöðu sinni til fjölmiðlafrumvarpsins sem án efa átti drjúgan þátt í að kollvarpa hinni ófyrirleitnu aðför ríkisstjórnarinnar að tjáningarfrelsi í landinu. Hvorug þessara mála voru á stefnuskrá Framsóknarflokksins þegar Kristinn var kjörinn á þing og hann var því ekki að snúast gegn grundvallaratriðum í stefnu flokksins heldur þeirri málefnalegu sveigju sem flokksforystan hafði tekið. Í raun má segja að Kristinn H. Gunnarsson sé í þessum málum og fleirum miklu trúrri hefðbundinni stefnu og afstöðu Framsóknarflokksins, sem einkennst hefur af hófsemi og málamiðlunum, en núverandi þingflokkur framsóknarmanna. Þó að Kristinn H. Gunnarsson teljist enn til þingflokksins og hafi áréttað að hann sé stuðningsmaður ríkisstjórnarinnar er ljóst að á bak við útilokun hans frá nefndarstörfum felst það mat forystumanna flokksins að hann sé de facto fyrir borð af skútu stjórnarliðsins. Þessi skilningur kom líka glögglega fram í stjórnarmálgagninu, Morgunblaðinu, á miðvikudaginn þar sem aðförinni að Kristni var fagnað í anda þeirra raunalegu stjórnmála foringjaræðis og liðsheildarhyggju sem blaðið hefur gerst málsvari fyrir. Blaðið gekk raunar lengra en forystumenn Framsóknarflokksins hafa opinberlgea gefið tilefni til og spáði því að flokkurinn mundi svipta Kristin þingsætinu í næstu kosningum. Kjóllinn er farinn, kallið er næst. Stjórnarmeirihlutinn á Alþingi er tæpur og má ekki við því að missa fleiri menn fyrir borð. Líklega á ráðningin sem Kristinn H. Gunnarsson hefur fengið að tryggja að aðrir þingmenn hugsi sig um tvisvar áður en þeir setja sig á háan hest gagnvart þeirri stefnu sem forystumenn flokksins fylgja hverju sinni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fastir pennar Guðmundur Magnússon Mest lesið 24000 Íslendingar telja sig hafa skaðast alvarlega – af hverju er það ekki rannsakað? Jóhannes Loftsson Skoðun Vægi Íslendinga gæti jafnast á við 15 milljónir Þjóðverja Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Af hverju tala þau svona? Guðjón Heiðar Pálsson Skoðun Mesti árangur í útlendingamálum í 9 ár Þorbjörg S Gunnlaugsdóttir Skoðun Verðmætasköpunarhaustið? Af 1000 störfum voru 962 opinber og 38 á almenna markaðnum Elliði Vignisson Skoðun Mörk réttarríkisins og friðhelgi einkasamskipta Erna Bjarnadóttir Skoðun Hvað þarf til að verða sjúkraliði? Sandra B. Franks Skoðun Hvenær urðu Íslendingar svona uppteknir af því að eiga? Valerio Gargiulo Skoðun Hver gætir barnanna þegar kerfið bregst? Inga Sæland Skoðun Að segja „JÁ“ snýst um sanngirni og framþróun Nichole Leigh Mosty Skoðun
24000 Íslendingar telja sig hafa skaðast alvarlega – af hverju er það ekki rannsakað? Jóhannes Loftsson Skoðun
Verðmætasköpunarhaustið? Af 1000 störfum voru 962 opinber og 38 á almenna markaðnum Elliði Vignisson Skoðun
24000 Íslendingar telja sig hafa skaðast alvarlega – af hverju er það ekki rannsakað? Jóhannes Loftsson Skoðun
Verðmætasköpunarhaustið? Af 1000 störfum voru 962 opinber og 38 á almenna markaðnum Elliði Vignisson Skoðun