Þetta var ótrúlega ótrúlegt! 12. júlí 2004 00:01 Smári Jósepsson veltir fyrir sér því hvort íþróttaþulir séu fæddir snillingar.Ég er svo heppinn að tilheyra vinahópi sem er mikill gagnabanki af gullmolum. Þar leynist ýmislegt sem kemst því miður ekki upp á yfirborðið og þótti mér tilvalið að setja nokkra á blað. Að mínu mati bera þar hæst háfleygir íþróttaþulir okkar íslendinga, sem eru miklir meistarar.Iðulega, þegar ég og reyðfirskur vinur minn höldum út á körfuboltavöll, vitnum við í Einar Bollason. Gárunginn sá hefur látið fleygar setningar frá sér fara sem koma sterkar inn á góðri stundu. "Þetta var alveg ótrúlega ótrúlegt" er í miklu uppáhaldi, "Þriggja stiga gúrrva!" er önnur sterk, "Þetta var heldur betur karfa" og síðast en ekki síst "Áhorfendur rísa úr fætum og klappa fyrir leiknum".Meistari Bollason er ekki einn um það að grípa sterkt til orða. "Guðmundur má muna sinn feful fígurri" heyrðist nýlega og "Allir leikmenn liðsins eru vel á annan metra"! sagði Valtýr Björn þegar hann lýsti aðdáun sinni á hæð leikmanna Miami Heat í NBA-deildinni.Já, hvar værum við ef slíkra snillinga nyti ei við? Þegar mönnum hitnar í hamsi yfir góðum íþróttaleik þá getur greinilega, eins og svo oft er sagt, "allt gerst í beinni útsendingu". Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Stuð milli stríða Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun