
Sund

Íslandsmet bætt í Herning
Blönduð sveit Íslands bætti nokkurra vikna gamalt Íslandsmet SH í 4x50 m skriðsundi á EM í 25 m laug í Danmörku í morgun.

Eygló síðust inn í undanúrslitin
Eygló Ósk Gústafsdóttir náði inn í undanúrslit í sinni annarri grein á EM í 25 m laug í Danmörku er hún keppti í 50 m baksundi.

Eygló Ósk skráði nafn sitt í sögubækurnar
Eygló Ósk Gústafsdóttir skráði sig í sögubækurnar í gær er hún varð fyrsta íslenska sundkonan til þess að keppa í úrslitum á Evrópumeistaramóti í 25 metra laug.

Eygló á sínum næstbesta tíma og varð í áttunda sæti
Eygló Ósk Gústafsdóttir úr Ægi hafnaði í áttunda sæti í úrslitasundinu á EM í 25 metra laug í Danmörku í dag. Hún var 13/100 úr sekúndu frá Íslandsmeti sínu.

Enginn bætti sig í Herning
Eygló Ósk Gústafsdóttir tók því rólega í 100 m fjórsundi á EM í 25 m laug í Herning í Danmörku í morgun. Enginn Íslendinganna sem keppti í morgun náði að bæta sig.

Eygló í úrslit á nýju Íslandsmeti
Eygló Ósk Gústafsdóttir byrjar frábærlega á EM í 25 m laug en nú síðdegis komst hún í úrslit í 100 m baksundi á nýju Íslandsmeti.

Eygló byrjar vel í Herning
Eygló Ósk Gústafsdóttir komst í morgun í undanúrslit í 100 m baksundi á Evrópumeistaramótinu í 25 m laug sem hófst nú í morgun í Herning á Jótlandi.

Síðasta met Sigrúnar Huldar féll um helgina
Fyrra met Sigrúnar Huldar var 3:07,40 mín. en hún setti metið á móti í Svíþjóð.

„Ég borða eiginlega allt sem ég sé“
Sundkonan Eygló Ósk Gústafsdóttir segist alltaf svöng og vís til að sofa yfir sig. Breiðhyltingurinn bætti fimm Íslandsmet um liðna helgi og stefnir hátt.

Kolbrún Alda bætti fjórtán ára gamalt met Báru
Sundkonan Kolbrún Alda Stefánsdóttir úr Firði/SH stórbætti Íslandsmet Báru Bergmann Erlingsdóttur í 400 metra fjórsundi á Íslandsmótinu um helgina.

Hrafnhildur með þrjú skólamet
Hafnfirska sundkonan Hrafnhildur Lúthersdóttir er að standa sig vel með skólaliði University of Florida en hún fór á kostum á sterku sundmóti í Ohio í Bandaríkjunum um helgina.

Eygló setti þriðja Íslandsmetið
Eitt Íslandsmót féll á öðrum degi Íslandsmótsins í 25 metra laug í sundi. Það setti Eygló Ósk Gústafsdóttir í 100 metra baksundi. Hún setti metið þegar hún synti fyrsta sprett í 4x100 fjórsundsboðsundi. Eygló synti á 59,56 sekúndum en gamla metið var 59,75 sekúndur sem hún átti sjálf frá því í desember 2011.

Eygló með þrjú gull og tvö Íslandsmet á fyrsta degi
Ægisstelpurnar Eygló Ósk Gústafsdóttir og Inga Elin Cryer og Fjölnismaðurinn Kristinn Þórarinsson unnu öll þrjú gull á fyrsta degi Íslandsmeistaramótsins í 25m laug sem fer fram í Ásvallalaug í Hafnarfirði um helgina.

Jón Margeir hjálpaði karlasveit Fjölnis að bæta tólf ára Íslandsmet
Jón Margeir Sverrisson setti fimm Íslandsmet á fyrsta degi Íslandsmeistaramótsins í 25m laug sem hófst í Ásvallalaug í Hafnarfirði í kvöld og heldur síðan áfram í dag og á morgun. Íslandsmóti Íþróttasambands fatlaðra fer fram samhliða Íslandsmótinu

Eygló Ósk með tvö Íslandsmet
Sundkonan Eygló Ósk Gústavsdóttir úr Ægi er í banastuði á Íslandsmeistaramótinu í 25 metra laug í Ásvallalauginni í Hafnarfirði.

Phelps gæti synt á ÓL í Ríó
Sigursælasti íþróttamaður í sögu Ólympíuleikanna, sundkappinn Michael Phelps, er hugsanlega á leiðinni í laugina á nýjan leik.

Jón Margeir varð sexfaldur Norðurlandameistari
Jón Margeir Sverrisson, Ólympíumeistari fatlaðra frá því í London 2012, vann sex einstaklingsgull á Norðurlandamóti fatlaðra í sundi sem fór fram í Stokkhólmi í Svíþjóð um helgina.

Jón Margeir og Kolbrún Alda Norðurlandameistarar
Jón Margeir Sverrisson úr Fjölni og Kolbrún Alda Stefánsdóttir úr Firði tryggðu sér í dag Norðurlandameistaratitla á NM í sundi fatlaðra í Stokkhólmi en íslenski hópurinn náði frábærum árangri í fyrsta mótshluta í Eriksdalsbadet í dag.

Hópurinn sem fer á Norðurlandamótið í Svíþjóð
Norðurlandamót fatlaðra í sundi fer fram í Svíþjóð dagana 1.-3. nóvember næstkomandi og hafa 11 íslenskir sundmenn verið valdir til þátttöku í mótinu.

Íslandsmet Jóns Margeirs dugði ekki til að komast á pall
Jón Margeir Sverrisson varði í 5. sæti í 200 metra fjórsundi á lokakeppnisdegi heimsmeistaramóts fatlaðra í sundi í Montréal en hann var með þriðja besta tímann inn í úrslitasundið. Það dugði ekki að Jón Margeir bætt Íslandsmet sitt um tæpar tvær sekúndur því hann rétt missti af bronsinu eftir æsispenanndi lokasprett.

Setti fimm Íslandsmet á sama deginum
Hjörtur Már Ingvarsson úr Íþróttafélaginu Firði gat verið himinlifandi með afrakstur sinn á þriðjudaginn á HM fatlaðra í sundi en mótið fer að þessu sinni fram í Montréal í Kanada. Hann hélt síðan áfram að bæta sig í 200 metra fjórsundi í gær.

Hjörtur Már heldur áfram að bæta sig
Sundkappinn Hjörtur Már Ingvarsson hafnaði í 10. sæti í 200 metra fjórsundi á heimsmeistaramóti fatlaðra sem fram fer í Montreal í Kanada.

Thelma Björg í sjöunda sæti á HM
Thelma Björg Björnsdóttir varð sjöunda í úrslitum fimmtíu metra skriðsundi kvenna á heimsmeistaramóti fatlaðra í Montreal í sundi en hún keppir í S6 flokki.

Hjörtur Már stórbætti eigið Íslandsmet
Sundkappinn Hjörtur Már Ingvarsson varð sjöundi í 200 metra skriðsundi í flokki S5 á heimsmeistaramóti fatlaðra í gær en mótið fer fram í Montreal í Kanada.

Jón Margeir setti Evrópumet og nældi í silfur
Jón Margeir Sverrisson, sundmaður úr Fjölni/Ösp, vann til silfurverðlauna í 200 metra skriðsundi í flokki S14 á HM í sundi fatlaðra í Montreal í nótt.

Sundþjálfari ósáttur við vatnið
Landsliðsþjálfari Breta í sundi hefur farið þess á leit að úrtökumót fyrir landslið Breta fari ekki lengur fram í lauginni Ponds Forge í Sheffield.

Anton Sveinn í 26. sæti
Sundkappinn Anton Sveinn Mckee lauk 400 metra fjórsundi í 26. sæti af 39 keppendum á heimsmeistaramótinu í sundi sem fram fer þessa dagana í Barcelona og Spáni.

Hörkubæting hjá Ingibjörgu Kristínu
Ingibjörg Kristín Jónsdóttir hafnaði í 32. sæti af 83 keppendum í 50 metra skriðsundi á HM í Barcelona í morgun.

Aftur bætti Hrafnhildur Íslandsmetið
Hrafnhildur Lúthersdóttir, sundkona úr SH, hafnaði í 13. sæti í undanúrslitum á heimsmeistaramótinu í 50 metra laug í Barcelona fyrir stundu.

Kaka snædd og Íslandsmet bætt
Hrafnhildur Lúthersdóttir úr SH gerði sér lítið fyrir og stórbætti Íslandsmet sitt í 50 metra bringusundi á HM í Barcelona á Spáni í morgun.