Ólafur Stephensen

Fréttamynd

Endapunktur

Við nýja Icesave-samkomulagið sem náðist í London í fyrrinótt er aðeins eitt að gera; afgreiða það sem lög frá Alþingi eins fljótt og hægt er og ljúka þar með einkar óskemmtilegum kafla í Íslandssögunni. Nú þegar hefur lausn málsins tafizt í nærri heilt ár frá því að forseti Íslands synjaði lögum um fyrri samninginn staðfestingar í byrjun ársins.

Fastir pennar
Fréttamynd

Fylgir hugur máli hjá Samfylkingunni?

Flokksráð Samfylkingarinnar, sem kom saman um síðustu helgi, fjallaði um skýrslu svokallaðrar umbótanefndar, sem sett var á laggirnar eftir að rannsóknarskýrsla Alþingis kom út

Skoðun
Fréttamynd

Grunsemdir um iðnnjósnir á að taka alvarlega

Skýrslur bandaríska sendiráðsins á Íslandi, sem Wikileaks komst yfir og íslenzkir fjölmiðlar hafa sagt frá undanfarna daga, eru um margt áhugaverðar þótt þar séu ekki uppljóstranir sem skekja samfélagið. Skýrslurnar veita fyrst og fremst innsýn í hvernig

Fastir pennar
Fréttamynd

Nóg að gert

Samkomulag ríkisstjórnarinnar, banka og lífeyrissjóða um aðstoð við skuldug heimili, sem undirritað var í gær, uppfyllir sjálfsagt ekki margar af þeim væntingum, sem búnar hafa verið til undanfarna

Fastir pennar
Fréttamynd

Ofurkjúklingurinn

Lengi hefur því verið haldið að neytendum að íslenzkt fuglakjöt væri miklu betri vara en útlent af því að það væri sjúkdómafrítt. Þetta hefur kannski stuðlað að því að einhverjir hafa átt auðveldara með að sætta sig við að innlend framleiðsla sé vernduð með ofurtollum á innfluttan kjúkling og

Fastir pennar
Fréttamynd

Þjóðin var vandanum vaxin

Þjóðinni virðist hafa verið ágætlega treystandi til að kjósa sér stjórnlagaþing. Sá 25 manna hópur, sem náði kjöri á þingið, er tiltölulega breiður og endurspeglar margvísleg sjónarmið.

Fastir pennar
Fréttamynd

Af hverju kusu svo fáir?

Stjórnlagaþingið er merkileg tilraun í lýðræðislegum stjórnarháttum. Það er nýtt fyrir Íslendingum að geta farið framhjá stjórnmálaflokkunum við kosningar og að kjósa einvörðungu persónur, sem bjóða sig fram á eigin forsendum. Það er sömuleiðis nýtt fyrir okkur að kjósa þing sem hefur það

Fastir pennar
Fréttamynd

Tækifærið til að breyta er núna

Kristinn H. Gunnarsson, fyrrverandi alþingismaður, sagði í grein sem birtist í Fréttablaðinu í gær að Árni Páll Árnason viðskipta- og efnahagsmálaráðherra, sem sagði fyrr í vikunni að hann vildi breyta landinu í eitt kjördæmi, ætti

Fastir pennar
Fréttamynd

Kjördæmapotið - úrelt vinnubrögð sem ekki þola dagsljósið

Meðferð Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra og Árna Páls Árnasonar, fyrrverandi félagsmálaráðherra, á málefnum vistheimilisins Árbótar í Aðaldal, sem Fréttablaðið hefur sagt frá undanfarna daga, gefur innsýn í vinnubrögð sem sumir héldu kannski að heyrðu sögunni til en eimir þó enn eftir af.

Fastir pennar
Fréttamynd

Hagsmunir að halda opnu

Þrír stjórnmálaflokkar eru klofnir í afstöðu sinni til aðildar að Evrópusambandinu. Þetta eru Sjálfstæðisflokkurinn, Vinstrihreyfingin – grænt framboð og Framsóknarflokkurinn.

Fastir pennar
Fréttamynd

Verður barizt við vindmyllur?

Fréttablaðið hefur sagt frá því undanfarna daga að Landsvirkjun telji vindmyllur raunhæfan kost til raforkuframleiðslu hér á landi. Fyrirtækið vinnur nú að könnun á möguleikunum og benda fyrstu niðurstöður rannsókna til að Suðurlandsundirlendið henti einna bezt fyrir vindrafstöðvar.

Fastir pennar
Fréttamynd

Einföld lausn

Fréttablaðið sagði í gær frá svartri skýrslu Umhverfisstofnunar um ástand friðlýstra svæða víða um land. Mörg líða þau fyrir sívaxandi átroðning ferðamanna og slæma umgengni. Víða er gæzla og eftirlit, þjónusta og gerð stíga og girðinga til að vernda náttúruminjarnar mjög af skornum skammti.

Skoðun
Fréttamynd

Boltaleikurinn

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknar­flokksins, orðaði það svo í Fréttablaðinu í gær að ekki væri hægt að klára samninga um Icesave-skuldina vegna „pólitíska ástandsins á Íslandi“. Formaðurinn vísaði meðal annars til áhrifa landsdómsmálsins, fjöldamótmæla, átaka um skuldamál heimilanna og deilna um niðurskurð í heilbrigðiskerfinu. Það er rétt hjá Sigmundi Davíð að pólitíska ástandið á Íslandi er vont. Ríkisstjórnin er sjálfri sér sundurþykk um ýmis mál. Stórar og mikilvægar ákvarðanir sitja á hakanum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Mikil ábyrgð

Samdráttur í losun gróðurhúsalofttegunda getur haldizt í hendur við hagvöxt og bætt lífsgæði.

Fastir pennar
Fréttamynd

Ákvarðanir fljótt

Skýrsla sérfræðingahóps ríkisstjórnarinnar, sem reiknaði út kostnað og gagnsemi ýmissa leiða til að koma til móts við fólk í skuldavanda, er góður grunnur fyrir ákvarðanir í málinu. Meira liggur nú fyrir en áður, jafnt um umfang alvarlegs skuldavanda og um kostnað við að mæta honum. Hópurinn telur að um 10.700 heimili af tæplega 100.000 séu í greiðsluvanda. Það eru tæplega 15% þeirra heimila, sem skulda fé vegna fasteignakaupa. Yfir 80% af þeim, sem eiga í erfiðleikum með að greiða af lánum sínum, keyptu fasteign á bóluárunum, 2004-2008.

Fastir pennar
Fréttamynd

Úrelt tvískipting

Könnun á meðal forstöðumanna ríkisstofnana, sem Ríkisendurskoðun kynnti í gær, sýnir fram á mikla óánægju þeirra með lögin um ríkisstarfsmenn, sem þeim er gert að starfa eftir. Þetta er ekki nýtt og hefur komið fram áður í sambærilegum könnunum en á ríkt erindi í umræðuna nú, þegar skattgreiðendur eiga heimtingu á að farið sé vel með hverja krónu sem þeir leggja til rekstrar ríkisstofnana.

Fastir pennar
Fréttamynd

Staðreyndirnar eða óttinn

Í skýrslu um aðildarviðræður Íslands og Evrópusambandsins, sem kynnt var í gær, kemur fátt á óvart. Ísland uppfyllir öðrum ríkjum betur pólitísk og efnahagsleg skilyrði fyrir aðild að sambandinu. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins telur hins vegar að Ísland þurfi að laga margt í regluverki sínu og stjórnsýslu, áður en það geti orðið aðildarríki sambandsins.

Fastir pennar
Fréttamynd

Hvernig eða hvað...

Þjóðfundurinn sem haldinn var á laugardag var merkileg tilraun. Aldrei áður hefur þannig með markvissum hætti verið leitað eftir sjónarmiðum almennings í aðdraganda endurskoðunar stjórnlaga ríkis. Aðferðin er einstök og á sér aðeins eina fyrirmynd, þjóðfundinn sem haldinn var í fyrra á vegum sjálfboðaliða. Þar voru kallaðir saman yfir þúsund Íslendingar, sem valdir voru með slembiúrtaki úr þjóðskrá. Aldrei áður hafði slíkt úrtak heillar þjóðar verið saman komið undir sama þaki.

Fastir pennar
Fréttamynd

Að stuðla að fjárfestingum

Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar segir orðrétt að hún ætli að „stuðla að beinum erlendum fjárfestingum". Þetta er þar réttilega sagt ein forsenda þess að hægt verði að ná góðum og jöfnum hagvexti, sem aftur sé forsenda þess að afnema gjaldeyrishöft og lækka

Fastir pennar
Fréttamynd

Fórnarlömbin

Krafan um almenna skuldaniðurfellingu og betri varnir gegn því að lánardrottnar geti gengið að skuldurum er áfram hávær og verður vafalaust borin fram í mótmælum sem boðuð hafa verið á Austurvelli í dag. Ekki leikur vafi á að margir eru í alvarlegum skuldavanda og í þörf fyrir aðstoð. Opinberar tölur segja okkur að fimmtungur húseigenda í landinu skuldi meira en þeir eiga í eignum sínum. Hins vegar leikur heldur ekki vafi á að sá vandi er tilkominn með mismunandi hætti og ekki endilega á sama tíma.

Fastir pennar
Fréttamynd

Jarðvarmaklasi í fjötrum fortíðar?

Fyrirlestur Michaels Porter, prófessors við Harvard-háskóla, í Háskólabíói í fyrradag blés viðstöddum bjartsýni í brjóst. Porter, sem er einn fremsti sérfræðingur heims á sviði stefnumótunar og samkeppnishæfni þjóða, telur að jarðvarmageirinn hér á landi geti orðið drifkrafturinn í endurreisn efnahagslífsins. Virkjun jarðvarma í þágu orkufreks iðnaðar - ekki þó endilega bara álvera - sé sá kostur sem geti skilað Íslandi skjótustum ávinningi og jafnframt liggi gríðarleg tækifæri í útflutningi tækni og þekkingar á sviði jarðvarma.

Fastir pennar
Fréttamynd

Varnir á netinu

Fréttablaðið hefur undanfarna tíu daga fjallað um varnar­leysi Íslands gagnvart tölvuárásum. Slíkar árásir eru taldar vaxandi ógn við öryggi ríkja og geta verið af margvíslegum toga. Tölvuþrjótar geta reynt að ráðast á netkerfi einstakra fyrirtækja eða jafnvel heilu ríkjanna og hefur

Skoðun
Fréttamynd

Hvar á þá að skera niður?

Guðbjartur Hannesson heilbrigðisráðherra og Oddný G. Harðardóttir, formaður fjárlaganefndar Alþingis, hafa bæði lýst því yfir á síðustu dögum að áformin um niðurskurð á sjúkrahúsum á landsbyggðinni verði endurskoðuð og minna skorið niður en lagt var upp með.

Fastir pennar
Fréttamynd

Gamanið búið í Reykjavík

Jákvæðni og lífsgleði, grín og glens voru allsráðandi þegar borgarstjórnarmeirihlutinn núverandi tók við völdum. Fulltrúar Bezta flokksins og Samfylkingarinnar knúsuðust á blokkarþaki í Breiðholtinu. Stefnuyfirlýsing flokkanna var full af frábærum og skemmtilegum hugmyndum, sem allir gátu verið sammála um.

Fastir pennar
Fréttamynd

Mark tekið á markaðnum

Ákvörðun Icelandic Group um að taka upp samstarf við Sjávarnytjaráðið, Marine Stewardship Council, um umhverfisvottun á sjávarafurðum er ntalsverð tíðindi.

Fastir pennar
Fréttamynd

Góð nýting skattfjár?

Tveir prófessorar við læknadeild Háskóla Íslands, Eiríkur Steingrímsson og Magnús Karl Magnússon, hafa að undan­förnu skrifað áhugaverðar greinar í Fréttablaðið um háskólarannsóknir á Íslandi. Þar hafa þeir meðal annars spurt þeirrar spurningar hvernig tryggja megi að þeir takmörkuðu

Fastir pennar
Fréttamynd

Ofsi og misskilningur

Fulltrúar Bezta flokksins, Vinstri grænna og Samfylkingarinnar í mannréttindaráði Reykjavíkur eru í vandræðum vegna mikilla og neikvæðra viðbragða við tillögu flokkanna um að úthýsa kristinni trú og siðum úr skólastarfi í borginni. Talsmenn tillögunnar reyna nú að halda því fram að viðbrögðin byggist á "misskilningi" og séu "ofsafengin" eins og Margrét Sverrisdóttir, formaður ráðsins, orðaði það hér í blaðinu eftir að biskup Íslands gagnrýndi áformin harðlega.

Fastir pennar
Fréttamynd

Dýrari en forsætisráðherrann

Fréttablaðið hefur í vikunni sagt tvær fréttir af því að hætta sé á því að ekki verði hægt að manna lykilstöður opinberra starfsmanna með hæfu fólki vegna þess að betri kjör bjóðist annars staðar.

Fastir pennar
Fréttamynd

Nóg komið af dómunum

Stundum þurfa sprenglærðir dómarar að kveða upp ótal dóma, studda vandaðri lögfræðilegri röksemdafærslu áður en fólki dettur í hug að gera það sem einföld, heilbrigð skynsemi býður. Þetta virðist eiga við um spurninguna hvort Alþingi megi með lögum skylda fólk til að borga félagsgjald í félagi sem það er ekki í og vill ekki vera í, telur jafnvel vinna gegn hagsmunum sínum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Trú og hefðir strokaðar út?

Meirihlutinn í mannréttindaráði Reykjavíkurborgar hefur lagt fram drög að ályktun um samskipti leik- og grunnskóla borgarinnar við trúfélög. Ekki verður annað séð en að nái ýmsar tillögur sem þar er að finna fram að ganga, verði ýmsar gamlar og góðar hefðir í skólastarfinu afnumdar.

Fastir pennar