Erna Hrönn: Berskjöldunin er heillandi
Tónlistarkonan Ísold kíkti í heimsókn með glænýtt lag sem átti heldur betur við á þessum þungbúna degi en það nefnist „Þoka yfir Reykjavík“. Lagið er draumkennt lítið sumarlag á einlægu nótunum en sex ár eru síðan Ísold gaf síðast út lag sjálf á eigin forsendum.