Iðnaðarmenn eiga fund með Samtökum atvinnulífsins
Iðnaðarmenn eiga fund með Samtökum atvinnulífsins í dag eða morgun hjá Ríkissáttasemjara og þá ræðst hvort að viðræðum verður slitið eða ekki. Berghildur Erla talaði við Kristján Þórð Snæbjarnarson formann Rafiðnaðarsambandsins. En hann er talsmaður i samflots iðnaðarmannafélaga sem í eru 16 þúsund manns.