Nexpo-vefverðlaunin - Spandy Andy
Í kvöld klukkan 20 fer fram afhending á Nexpo-vefverðlaununum á efri hæð Sólon við Bankastræti. Í meðfylgjandi myndbandi má sjá upphafsatriði verðlaunaafhendingarinnar, þar sem vefgrínarinn Spandy Andy, tekur nokkur lauflétt spor.
Mikil eftirvænting ríkir fyrir afhendingunni en síðustu vikur hefur farið fram kosning með almennings hér á Vísi þar sem bárust ríflega 16 þúsund atkvæði. Verðlaununum verður sjónvarpað í beinni útsendingu hér á Vísi.