Í bítið: Frumvarp á Alþingi um réttindi lánþega - Eygló Harðardóttir

Allir verða að hafa hagsmuni af því að ljúka málinu og fá niðurstöðu um endurútreikning gengistryggðra lána. Þann hvata hefur vantað og ferlið dregist von úr viti, jafnvel þannig að hagsmunir fjármálafyrirtækjanna hafa legið í að draga málin á langinn og þreyta lántakendur. Frumvarpið leggur til að lántakar hafi rétt til að greiða af lánum sínum með föstum greiðslum sem nema 5.000 kr. af hverri upprunalegri milljón lánsins og teljist því í skilum uns niðurstaða liggur fyrir í Hæstarétti um hin ýmsu ágreiningsefni. Jafnframt er ítrekaður sá skilningur að lántaki getur aldrei hafa verið í vanskilum með lán eða lánasamninga, sem þessi lög taka til, þar sem þau hafi verið með ólögmæta skilmála. Inni lántaki af hendi að lágmarki þá greiðslu sem hér er lagt til, telst hann vera í fullum skilum með afborganir af láninu.

793
08:39

Vinsælt í flokknum Bítið