Ísland í dag - Nennir ekki að bíða eftir sumarblómunum og salatinu!

Auður Ottesen garðyrkjumeistari og útgefandi tímaritsins Sumarhúsið og garðurinn hefur sýnt okkur í Íslandi í dag alls kyns skemmtilega hluti sem tengjast garðrækt og eru óvenjulegir og frumlegir. Hún til dæmis hefur þakið ruslaskýlið sitt með dásamlegum sígrænum plöntum. Hún er með lífrænan hrauk í garðinum þar sem hún ræktar bæði blóm og ýmislegt ætilegt. Og núna sýnir hún okkur hvernig hægt er að setja niður dásamlega falleg sumarblóm strax og byrja að njóta strax. Og einnig sýnir hún okkur hvernig hægt er að setja niður salathausa beint úr búðinni þannig að hægt er að nota í salat í allt sumar og ekki þarf endalaust að kaupa nýtt salat sem er algjör snilld. Vala Matt fór og fékk að sjá ýmis trix sem Auður sýnir okkur að þessu sinni í Íslandi í dag.

4973
12:11

Vinsælt í flokknum Ísland í dag