Sigga Lund - Soffía í Skreytum hús í sjónvarpið

"Góðir hlutir gerast hægt" , sagði Soffía Dögg Garðarsdóttir í viðtali við Siggu Lund á Bylgjunni í dag. Soffíu þekkjum vel úr Skreytum hús á samfélagsmiðlum þar sem hún hefur um árabil gefið fylgjendum sínum góð ráð og hugmyndir er kemur að því að skreyta heimili sín. Nýjasta rósin í hnappagatið er svo sjónvarpsþátturinn Skreytum hús sem er í hennar umsjá og byrjar í nóvember á Vísi og Stöð 2 Maraþon. Í viðtalinu á Bylgjunni sagði Soffía hlustendum frá nýju þáttunum og hvernig ævintýrið hennar Skreytum hús hófst fyrir tíu árum.

137
08:54

Næst í spilun: Sigga Lund

Vinsælt í flokknum Sigga Lund