Mosha Lundstrom í Radio J’adora

Í þessum þætti af Radio J’adora fékk Dóra Júlía til sín Moshu Lundstrom, kanadíska athafnakonu sem á rætur að rekja til Íslands. Mosha rekur tískufyrirtækið Thermakota ásamt systur sinni og móður og leggja þær áherslu á hlýjar og góðar yfirhafnir þar sem litagleði og glimmer getur ráðið ríkjum. Hún er mikill tískumógull og skrifað meðal annars pistla fyrir Vogue - en hún og Dóra kynntust einmitt þegar Mosha gerði umfjöllun um Dóru og fleiri íslenskar stelpur, Nordic Cool Girls Guide to Reykjavik, fyrir vogue.com sumarið 2017. Þær ræddu um tísku og mikilvægi þess að finna sinn eigin stíl, innblástur, fyrirmyndir, samfélagsmiðla, Ísland og hvað væri gott að hafa í huga við að skapa sér tækifæri og láta drauma sína rætast.

49
56:09

Næst í spilun: Radio J´adora

Vinsælt í flokknum Radio J´adora