Beggi Ólafs með Sölva Tryggva

Sálfræðingurinn Bergsveinn Ólafsson stefndi árum saman að því að verða atvinnumaður í knattspyrnu. Eftir að hafa lagt allt í boltann áttaði hann sig á því að ástríðan var farin og lagði skóna á hilluna og setti alla sína krafta í að læra og miðla meiru í sálfræðinni. Eftir að hafa sökkt sér ofan í ástríðu sína fyrir innihaldsríkara lífi gaf hann nýlega út bókina ,,Tíu skref í átt að innihaldsríkara lífi". Í þættinum ræða Sölvi og Beggi um hvað einkennir innihaldsríkt líf, leiðir til að viðhalda ástríðu og komast í flæði og hvernig var að hætta sem fyrirliði knattspyrnuliðs í efstu deild gegn vilja allra í klúbbnum. Hægt er að horfa á allan þáttinn hér.

350
20:58

Vinsælt í flokknum Podcast með Sölva Tryggva