Ítalskir veitingamenn tókust á við óeirðalögreglu

Ítalskir veitingamenn tókust á við óeirðalögreglu í Róm í dag og kröfðust þess að fá að opna staði sína á nýjan leik. Gildandi sóttvarnareglur á Ítalíu gera ráð fyrir að veitingastaðir, kaffihús og barir verði lokaðir fram í maí hið minnsta líkt og þeir hafa meira og minna verið síðasta árið. Fjöldi veitingamanna safnaðist saman við þinghúsið í Róm í dag til að mótmæla lokunum og særðist einn lögregluþjónn í átökunum.

14
00:30

Vinsælt í flokknum Fréttir